Verklagsreglur starfsmanna í leikskólum Garðabæjar.
Málsnúmer 2512218
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
36. fundur
Í ljósi umræðna í samfélaginu um öryggi barna í leikskólum fór leikskólafulltrúi yfir það samráð sem átt hefur sér stað með stjórnendum leikskóla varðandi fyrirliggjandi verklagsreglur um ofbeldi og/eða óviðeigandi hegðun gagnvart börnum. Í þeirri vinnu rýndu stjórnendur einnig skipulag rýma og dagsskipulag leikskóla með tilliti til öryggis barna. Sú vinna var kynnt fyrir leikskólanefnd sem lýsir ánægju sinni yfir því að þessi vinna hafi farið fram í leikskólum Garðabæjar.