Starfshópur varðandi aukna tölvunotkun í skólastarfi
Ferill máls
Leikskólanefnd Garðabæjar
01
18. fundur
Greinargerð vísað frá bæjarráði til umfjöllunar leikskólanefndar

Greinargerðin lögð fram, en kynningu og umræðum um hana frestað til næsta fundar.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
02
19. fundur
Bæjarráð vísaði greinargerð starfshóps um aukna notkun upplýsingatækni í skólastarfi til skólanefndar til umfjöllunar.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs greindi frá vinnu starfshóps sem skipaður var af bæjarstjóra um aukna notkun upplýsingatækni í skólastarfi.

Skólanefnd grunnskóla fagnar greinargerð starfshópsins og telur mikilvægt að unnið verði að þeim umbótum sem taldar eru brýnar í grunnskólum bæjarins sem eru í raun forsenda þess að hægt verði að auka notkun upplýsingatækni í skólastarfinu og fylgja örri framþróun á þessu sviði. Skólanefnd óskar eftir því að við gerð fjárhagsáætlunar 2013 verði veitt nauðsynlegu fjármagni til þessa verkefnis.