Beint í efni

19. fundur

30.10.2012
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

19. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

30.10.2012

Kl. 17:15 - 20:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Páll Jóhann Hilmarsson - Formaður
  • Steinunn Jóhanna Bergmann - Aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - Aðalmaður
  • Elín Thorarensen - Aðalmaður
  • Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir - Varamaður
  • Ragnar Gíslason - fulltrúi skólastjóra
  • Árni Már Árnason - fulltrúi kennara
  • Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
  • Oddný J Eyjólfsdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Oddný J. Eyjólfsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1209165

01

Útikennslumiðstöð leik- og grunnskóla í Garðabæ

Kynning á þróunarverkefninu Útikennslumiðstöð leik- og grunnskóla í Garðabæ sem fékk styrk úr Sprotasjóði 2010.

Hafdís Bára Kristmundsdóttir kynnti þróunarverkefnið Útikennslumiðstöð leik- og grunnskóla í Garðabæ sem hlaut styrk úr Sprotasjóði mennta- og menningarmálaráðuneytisins 2010. Gerð var grein fyrir aðdraganda verkefnisins sem hefur verið unnið af starfshópi sem Hafdis hefur stýrt ásamt rökstuðningi fyrir vali á svæði, tillögum að uppbyggingu og hugmyndum um rekstur Útikennslumiðstöðvarinnar.

Málsnúmer 1204319

02

Tillaga um að taka upp viðræður við ríkið um rekstur Fjölbrautaskólans í Garðabæ

Kynning og umfjöllun um greinargerð Þorsteins Þorsteinssonar og Gunnlaugs Sigurðssonar dags. 21. september 2012.

Gunnlaugur Sigurðsson og Þorsteinn Þorsteinsson kynntu greinargerð sína sem unnin var að beiðni bæjarstjórnar Garðabæjar varðandi rekstur Fjölbrautarskólans í Garðabæ. Skólanefnd grunnskóla lýsir ánægju sinni með greinargerðina sem bendir á marga jákvæða þætti í skólastarfi í Garðabæ og gefur vísbendingar um sóknarfæri á þeim vettvangi. Skólaskrifstofu er falið að undirbúa málþing í byrjun næsta árs til að gefa sem flestum hagsmunaaðilum og bæjarbúum tækifæri til að koma að umræðu um málið.

Málsnúmer 1205658

03

Framlag með börnum á miðstigi á Vífilsstöðum

Bæjarráð vísaði erindi Hjallastefnunnar um framlag með börnum á miðstigi til umfjöllunar í skólanefnd.

Gerð var grein fyrir forsögu málsins, stefnu um að foreldrar hafi frjálst val um skóla og að fé fylgi barni í grunnskólum í Garðabæ. Skólanefnd gerir því engar athugasemdir við að leitað verði leiða við gerð næstu fjárhagsáætlunar að verða við ósk Hjallastefnunnar um framlag með börnum á miðstigi eins og mögulegt er. Í umræðu kom meðal annars fram að þörf væri á ytra mati á starfi grunnskóla. Í því sambandi var vísað til lögbundins hlutverks skólanefndar um eftirlit með starfi grunnskóla samkvæmt 6. grein laga nr. 91/2008 . Nauðsynlegt væri því að skólanefnd grunnskóla væri tryggt fjármagn til að láta vinna úttekt á að minnsta kosti einum grunnskóla á ári.

Málsnúmer 1203061

04

Starfshópur varðandi aukna tölvunotkun í skólastarfi

Bæjarráð vísaði greinargerð starfshóps um aukna notkun upplýsingatækni í skólastarfi til skólanefndar til umfjöllunar.

Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs greindi frá vinnu starfshóps sem skipaður var af bæjarstjóra um aukna notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Skólanefnd grunnskóla fagnar greinargerð starfshópsins og telur mikilvægt að unnið verði að þeim umbótum sem taldar eru brýnar í grunnskólum bæjarins sem eru í raun forsenda þess að hægt verði að auka notkun upplýsingatækni í skólastarfinu og fylgja örri framþróun á þessu sviði. Skólanefnd óskar eftir því að við gerð fjárhagsáætlunar 2013 verði veitt nauðsynlegu fjármagni til þessa verkefnis.

Málsnúmer 1208092

05

Ársskýrslur grunnskóla 2011-2012

Ársskýrslur grunnskóla 2011-2012 lagðar fram.

Ársskýrslur grunnskóla fyrir starfsárið 2011-2012 voru lagðar fram.Kolbrún Pálsdóttir vakti athygli á umfjöllun um starf tómstundaheimila Flataskóla, Hofsstaðaskóla og Sjálandsskóla í ársskýrslunum og lagði fram eftirfarandi bókun:Á 14. fundi skólanefndar 2012 var samþykkt að endurskoðaður yrði faglegur rammi um störf tómstundaheimila fyrir 6-9 ára börn í Garðabæ. Ræddar voru ýmsar leiðir til að efla símenntun starfsmanna og auka samstarf milli tómstundaheimila. Fólkið í bænum óskar eftir upplýsingum um hvaða skref hafa verið stigin nú þegar til að endurskoða faglegan ramma um starf tómstundaheimila og samstarf milli skóla um innra starf tómstundaheimila.