Beint í efni

Framlag með börnum á miðstigi á Vífilsstöðum

Málsnúmer 1205658

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

19. fundur

Bæjarráð vísaði erindi Hjallastefnunnar um framlag með börnum á miðstigi til umfjöllunar í skólanefnd.

Gerð var grein fyrir forsögu málsins, stefnu um að foreldrar hafi frjálst val um skóla og að fé fylgi barni í grunnskólum í Garðabæ. Skólanefnd gerir því engar athugasemdir við að leitað verði leiða við gerð næstu fjárhagsáætlunar að verða við ósk Hjallastefnunnar um framlag með börnum á miðstigi eins og mögulegt er.

Í umræðu kom meðal annars fram að þörf væri á ytra mati á starfi grunnskóla. Í því sambandi var vísað til lögbundins hlutverks skólanefndar um eftirlit með starfi grunnskóla samkvæmt 6. grein laga nr. 91/2008 . Nauðsynlegt væri því að skólanefnd grunnskóla væri tryggt fjármagn til að láta vinna úttekt á að minnsta kosti einum grunnskóla á ári.