Beint í efni

Álftanesskóli- kynning

Málsnúmer 1301177

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

22. fundur

Skólastjóri kynnir starf Álftanesskóla og sýnir skólahúsnæðið.

Skólastjóri kynnti Álftanesskóla þar á meðal sögu skólans, þróun húsnæðis, helstu áfanga í skólastarfnu og áherslur á skólaárinu. Enn fremur gerði skólastjóri grein fyrir starfsemi Frístundar fyrir 6-8 ára börn sem og Elítunni sem er félagsstarf fyrir unglinga en þar er líka starfsemi fyrir nemendur í 5.-7. bekk. Loks lýsti skólastjóri helstu þróunarverkefnum sem ýmist eru komin vel á veg, eru nýhafin eða í burðarliðnum eins og forvarnaráætlun gegn kynferðislegu ofbeldi.

Formaður foreldrafélags Álftanesskóla lýst starfi foreldrafélagsins og helstu áherslum.

Á eftir voru fyrirspurnir og umræður.

Skólanefnd þakkaði skólastjóra og formanni foreldrafélags góðar kynningar og fagnaði því að fá Álftanesskóla í hóp grunnskóla í nýju sameinuðu sveitarfélagi.