Beint í efni

22. fundur

15.01.2013
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

22. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Álftanesskóla

15.01.2013

Kl. 17:15 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Páll Jóhann Hilmarsson - Formaður
  • Steinunn Jóhanna Bergmann - Aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - Aðalmaður
  • Elín Thorarensen - Aðalmaður
  • Ragný Þóra Guðjohnsen - Aðalmaður
  • Ragnar Gíslason - fulltrúi skólastjóra
  • Árni Már Árnason - fulltrúi kennara
  • Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir - fulltrúi foreldra
  • Kjartan Örn Sigurðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Oddný J Eyjólfsdóttir - deildarstjóri skóladeildar
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs

Ritari

  • Oddný Eyjólfsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1301177

01

Álftanesskóli- kynning

Skólastjóri kynnir starf Álftanesskóla og sýnir skólahúsnæðið.

Skólastjóri kynnti Álftanesskóla þar á meðal sögu skólans, þróun húsnæðis, helstu áfanga í skólastarfnu og áherslur á skólaárinu. Enn fremur gerði skólastjóri grein fyrir starfsemi Frístundar fyrir 6-8 ára börn sem og Elítunni sem er félagsstarf fyrir unglinga en þar er líka starfsemi fyrir nemendur í 5.-7. bekk. Loks lýsti skólastjóri helstu þróunarverkefnum sem ýmist eru komin vel á veg, eru nýhafin eða í burðarliðnum eins og forvarnaráætlun gegn kynferðislegu ofbeldi. Formaður foreldrafélags Álftanesskóla lýst starfi foreldrafélagsins og helstu áherslum. Á eftir voru fyrirspurnir og umræður. Skólanefnd þakkaði skólastjóra og formanni foreldrafélags góðar kynningar og fagnaði því að fá Álftanesskóla í hóp grunnskóla í nýju sameinuðu sveitarfélagi.

Málsnúmer 1301187

02

Skólalóð Álftanesskóla

Gerð verður grein fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum á skólalóð Álftanesskóla.

Formaður lýsti því að í fjárhagsáætlun 2013 væri gert ráð fyrir fjárveitingu til umbóta á skólalóð Álftanesskóla. Loks sýndi skólastjóri skólanefnd húsnæði skólans.