Blikanes 28, breytingar
Málsnúmer 1304513
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á einbýlishúsi að Blikanesi 28 sem gerir ráð fyrir stækkun húss til norðurs sem nemur 75,2 m2. Stækkun er innan byggingarreits og nýtingarhlutfall eftir stækkun er vel innan ákvæða tillögu að deiliskipulagi.
Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag í Arnarnesi vísar skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 26, 28 og 31 og Þrastaness 17 og 22. Ef engar athugasemdir berast gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að bæjarstjórn veiti byggingarleyfi fyrir breytingunni.