Beint í efni

5. fundur

26.04.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

5. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

utan Garðabæjar

26.04.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

• Stefán Snær Konráðsson - formaður
• Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
• Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
• Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
• Björn Hilmarsson - varamaður
• Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
• Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
• Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
• Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
• Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

• Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra dags 15.apríl þar sem lagt er ferli við val á ráðgjöfum vegna gerðar aðalskipulags Garðabæjar.  Auglýst verði eftir ráðgjafahópum sem hafi áhuga og getu til þess að taka verkið að sér. Úr þeim hópi verði valin 3-5 ráðgjafateymi sem munu í síðari stigi forvalsins gera grein fyrir því með hvaða hætti þau hyggist nálgast verkefið. Skipulagsnefnd ásamt skipulagsstjóra og bæjarverkfærðingi mynda forvalsnefnd sem gerir tillögur til bæjarstjórnar um val á ráðgjöfum.

Skipulagsnefnd mælir með því að umrædd leið verði farin.

Málsnúmer 1209299

02

Deiliskipulag Hnoðraholts og Vetrarmýrar, frumdrög að dsk br v. GKG

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts og Vetrarmýrar sem gerir ráð fyrir byggingarreit fyrir nýjan golfskála GKG við hlið núverandi golfskála.

Tillagan var í kynningu 13.mars til 24.apríl. Engar athugasemdir bárust.

Í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 samþykkir skipulagsnefnd breytinguna.

Málsnúmer 1304509

03

Blikanes 22, breytingar

Lögð fram tillaga að breytingum á einbýlishúsi að Blikanesi 22 sem gerir ráð fyrir stækkun bílskúrs og stofu sem nemur 51.3 m2. Stækkun er innan byggingarreits og nýtingarhlutfall eftir stækkun er vel innan ákvæða tillögu að deiliskipulagi.

Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag í Arnarnesi vísar skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 20, 24 og 21. Ef engar athugasemdir berast gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að bæjarstjórn veiti byggingarleyfi fyrir breytingunni.

Málsnúmer 1304513

04

Blikanes 28, breytingar

Lögð fram tillaga að breytingum á einbýlishúsi að Blikanesi 28 sem gerir ráð fyrir stækkun húss til  norðurs sem nemur 75,2 m2. Stækkun er innan byggingarreits og nýtingarhlutfall eftir stækkun er vel innan ákvæða tillögu að deiliskipulagi.
Þar sem að ekki er í gildi deiliskipulag í Arnarnesi vísar skipulagsnefnd tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 26, 28 og 31 og Þrastaness 17 og 22. Ef engar athugasemdir berast gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við að bæjarstjórn veiti byggingarleyfi fyrir breytingunni.

Málsnúmer 1304684

05

Kaldakur 7, dsk Akra, skjólveggur

Lögð fram umsókn um skjólvegg utan byggingarreits sem er 2 m á hæð miðað við hæðarkóta aðalhæðar. Skipulagsnefnd hafnar tillögunni og beinir því til eiganda að miða við 1,8 m hæð yfir landi á lóð sbr. ákvæði byggignarreglugerðar.

Málsnúmer 1303137

06

Faxatún 21 dsk-br Silfurtún

Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits vegna yfirbyggingar á bílastæði, opins bílskýlis. Samþykki nágranna liggur fyrir.

Í greinargerð deiliskipulags Silfurtúns ssegir í grein 3.1.2.Meginmarkmið; að endurnýju bygginga á svæðinu taki mið af heildaryfirbragði hverfisins.

Skipulagsnefnd telur að breytingin sé ekki í samræmi við byggðarmynstur, stingi verulega í stúf við yfirbragð húsa í götunni og sé því ekki í samræmi við framangreint markmið deiliskipulagsins. Er tillögunni því hafnað.

Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1303203

07

Göngustígur Garðahrauni

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings fyrir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir stofnstíg í hrauninu vestan Reykjanesbrautar milli Molduhrauns og Flata. Lögð fram umsögn umhverfisstofnunar dags. 18.mars og hefur verið tekið tillit til hennar við útfærslu stígsins. Hönnuðir hjá Landslagi ehf hafa í sarmráði við skipulagsstjóra og umhverfisstjóra lagað stíginn að hrauninu eins og frekast má verða. Tillagan hefur verið kynnt umhverfisnefnd sem veitir jákvæða umsögn.

Í samræmi við 13.gr.

Skipulagslaga nr 123/2010 veitir skipulagsnefnd framkvæmdaleyfi fyrir umræddum stíg í samræmi við þau gögn sem lögð eru fram á fundinum. Það skilyrði skal sett fyrir framkvæmdaleyfinu sbr. 2 mlsl. 3.mgr. 13.gr. Skipulagslaga að greint verði á milli hjólandi og gangandi vegfarenda með merkingum á stígnum. Er það skilyrði sett  í samræmi við markmið aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 þar sem lögð er áhersla á öryggi vegfarenda á stígum. (Kafli 2.4. Þjónustukerfi)

Málsnúmer 1212099

08

Hraungata 25-39, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í fjölbýlishús úr 8 í 11-12 og að valkostur um raðhús á lóðinni sé felldur úr gildi.

Tillagan var í kynningu frá 21.desember 2012 til 4.febrúar 2013.

Eitt athugasemdabréf barst sem varðar breytinguna.

Skipulagsnefnd leggur til að valkostur um byggingu raðhúsa á lóðinni verði áfram í gildi og að hámarksfjöldi íbúða verði 10 í stað 12 eins og auglýst tillaga gerir ráð fyrir.

Tillagan er samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga með ofangreindri breytingu.

Málsnúmer 1212098

09

Hraungata 3-17, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða í fjölbýlishús úr 8 í 11-16 og að valkostur um raðhús á lóðinni sé felldur úr gildi.

Tillagan var í kynningu frá 21.desember 2012 til 4.febrúar 2013.

Eitt athugasemdabréf barst sem varðar breytinguna.

Skipulagsnefnd leggur til að valkostur um byggingu raðhúsa á lóðinni verði áfram í gildi og að hámarksfjöldi íbúða verði 14 í stað 16 eins og auglýst tillaga gerir ráð fyrir.

Tillagan er samþykkt í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga með ofangreindri breytingu.

Málsnúmer 1207299

10

Nýr urðunarstaður

Lagt fram erindi frá Sorpu þar sem leitað var eftir tilnefningum fyrir mögulega urðunarstaði fyrir sorp í sveitarfélaginu. Skipulagsnefnd telur að sá staður sé ekki fyrir hendi innan staðarmarka Garðabæjar en vísar málinu að öðru leyti til endurskoðunar aðalskipulags og svæðisskipulags.