Beint í efni

Flórgoðavarp á Vífilsstaðavatni

Málsnúmer 1306410

Ferill máls

Umhverfisnefnd Garðabæjar

01

30. fundur

Ábending frá útivistarfólki við Vífilsstaðavatn 14. og 16. júní sl., um að flórgoðapar hafi komið upp hreiðri nálægt norðurbakkanum og annað par sér þar í hreiðurtilburðum. Þau óska eftir að ró fuglanna verði ekki raskað við lúpínuslátt með hávaðasömum vélorfum.

<DIV>Nefndarmenn fagna hreiðurgerð flórgoðans sem er mikill skrautfugl í friðlandinu. </DIV><DIV>Nefndin fer fram á að ekki verði notuð vélorf við heftingu útbreiðslu lúpínu vestan og norðanmegin við Vífilsstaðavatn yfir varptímann.</DIV>