Beint í efni

30. fundur

18.06.2013
Umhverfisnefnd Garðabæjar

30. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

18.06.2013

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2010010083

01

Aðgerðaáætlun gegn hávaða

Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur kynnti skýrslu um aðgerðaráætlun gegn hávaða og hávaðakort og skrá yfir stóra vegi skv. reglugerð 1000/2005. Erindinu vísað frá bæjarráði 4. júní sl. til umfjöllunar í umhverfisnefnd.

Umhverfisnefnd telur skýrsluna afar vel unna og vandaða með gagnlegum upplýsingum um stöðu málsins í dag og fyrirhugaðar aðgerðir.

Málsnúmer 1206034

02

Strönd og lækir, mengunarmælingar

Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur upplýsti um aðferðafræði varðandi aðgreiningu skolps- og regnvatnslagna. Unnið er í teymisvinnu með Heilbrigðiseftirliti, Þjónustumiðstöð og Hreinsitækni ehf.

Mælingar sýna að aðgerðir eru að skila árangri. Haldið verður áfram á sömu braut.Ákveðið að vara eigendur húsbíla við því að hreinsa salerni húsbíla í íbúðarhverfum með auglýsingu í Garðapóstinn.

Málsnúmer 1306334

03

Heiðmerkurvegur

Fyrirspurn nefndarmanns um ástand Heiðmerkurvegar. Einnig bent á slysagildru á Elliðavatnsvegi, þar sem börn hjóla eftir veginum til Golfvallar Odds.

Bæjarverkfræðingur útskýrði stöðu Heiðmerkurvegarins í stjórnsýslu Vegagerðarinnar. Þessi vegur ásamt öðrum sem Vegagerðin skilaði yfir til sveitarfélaga í lélegu ástandi er í málsmeðferð hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.Jafnframt rætt um að setja þarf heila miðlínu á Elliðavatnsveg (Flóttamannaveg) til að sporna við framúrakstri.

Málsnúmer 1305699

04

Dagur íslenskrar náttúru 2013

Erindi frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti dags. 21. maí 2013, varðar Dag íslenskrar náttúru. Sveitarfélög og landshlutasamtök eru hvött til að efna til viðburða þann 16. september nk. á Degi íslenskrar náttúru.

Lagt fram.

Málsnúmer 1111186

05

Framtíð Reykjanesfólkvangs

Bréf SSH varðandi mótun nýs samstarfssamnings um rekstur og stjórnun Reykjanesfólkvangs, dags. 05.06.13. vísar bæjarráð á 24. fundi sínum erindinu ásamt tillögum að næstu skrefum um framtíð Reykjanesfólkvangs til umfjöllunar umhverfisnefndar.$line$ $line$

Umhverfisnefndar svarar bæjarráði erindinu.

Málsnúmer 1306408

06

Er alaskalúpína eða skógarkerfill í þínu nágrenni?

Fræðslubæklingur frá Náttúrufræðistofnun Íslands 13.06.13

Lagt fram.

Málsnúmer 1306410

07

Flórgoðavarp á Vífilsstaðavatni

Ábending frá útivistarfólki við Vífilsstaðavatn 14. og 16. júní sl., um að flórgoðapar hafi komið upp hreiðri nálægt norðurbakkanum og annað par sér þar í hreiðurtilburðum. Þau óska eftir að ró fuglanna verði ekki raskað við lúpínuslátt með hávaðasömum vélorfum.

Nefndarmenn fagna hreiðurgerð flórgoðans sem er mikill skrautfugl í friðlandinu. Nefndin fer fram á að ekki verði notuð vélorf við heftingu útbreiðslu lúpínu vestan og norðanmegin við Vífilsstaðavatn yfir varptímann.

Málsnúmer 1303531

08

Kynningar og önnur mál 2013

Bílhræ eru á nokkrum stöðum í bæjarlandinu.

Málið rætt.