Beint í efni

Bréf Steinunnar E. Kolbeinsdóttur, hdl. varðandi garðhýsi og atvinnustarfsemi að Holtsbúð 85, dags. 08.10.13.

Málsnúmer 1310181

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

41. fundur

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir staðsetningu geymsluskúrs sem er undir 10 m2 á lóðinni við Holtsbúð 85. Fram kom að viðkomandi skúr er við lóðarmörk en ekki í þriggja metra fjarlægð frá lóðarmörkum eins og reglur áskilja. Bæjarráð vísar til bæjarverkfræðing að kanna staðsetningu geymsluskúrs og tryggja að staðsetning hans verði í samræmi við heimildir og útgefið leyfi. Hvað varðar starfsemi á gæslu barna í heimahúsi er það skoðun bæjarráðs að slík starfsemi geti fallið undir heimildir í skipulagslögum enda verður að telja að slík starfsemi valdi almennt ekki óþægindum eða ónæði. Þá vísar bæjarráð einnig í þessu sambandi til ákvæða í VIII. kafla í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglugerðar sem sett hefur verið á grundvelli þeirra um daggæslu í heimahúsum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.