Beint í efni

41. fundur

15.10.2013
Bæjarráð Garðabæjar

41. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

15.10.2013

Kl. 07:00 - 09:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir viðræðum við fulltrúa eftirfarandi aðili sem skipulagsnefnd hefur mælt með að boðið verði til samningsviðræðna um verkefnið. Teiknistofa arkitekta - Gylfi Guðjónssson og félagar/Landmótun/Efla. Kanon arkitektar/VSÓ ráðgjöf. Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar

Málsnúmer 1307717

02

Bréf Hauks Geirs Garðarssonar varðandi frágang lóðarinnar Brekkuás 13, dags. 09.10.13.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir viðræðum við bréfritara og mælingum sem gerðar hafa verið á hæðarsetningu lóða við lóðarmörk. Bæjarráð felur bæjarstjóra á þessu stigi að ræða bréfritara og lóðarhafa aðliggjandi lóða. Bæjarráð áréttar fyrri samþykkt um að ljúki lóðarhafi Brekkuáss 13 ekki framkvæmdum við lóð mun Garðabær beita heimild samkvæmt ákvæði í lóðarleigusamningi og byggingarreglugerð um að framkvæma verkið á hans kostnað.

Málsnúmer 1310125

03

Bréf körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar varðandi færanlegar körfur í Ásgarð og Sjálandsskóla, dags. 26.09.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1309235

04

Bréf SSH varðandi nýjan samstarfssamning um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins, dags. 09.10.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja samstarfssamning um rekstur Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Málsnúmer 1310128

05

Bréf Samskiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra varðandi styrk vegna túlkunar fyrir heyrnarlausa í tómstundar- og menningarviðburðum, dags. 02.10.13.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til fjölskyldusviðs og fræðslu- og menningarsviðs og felur sviðsstjórum afgreiðslu þess með hliðsjón af atburðum hverju sinni.

Málsnúmer 1310132

06

Bréf umhverfisnefndar varðandi tillögur til umhverfismála á fjárhagsáætlun fyrir árið 2014, dags. 10.10.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.

Málsnúmer 1301109

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 04.10.-11.10.2013.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 04.10. ? 11.10.2013 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Holtsveg 27 og Miðhraun 2.

Málsnúmer 1310191

08

Bréf sýslumanns varðandi umsögn vegna umsóknar Veritas Capital um rekstrarleyfi fyrir veislusal, dags. 07.10.13.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1303014

09

Skýrsla Vinnuskóla Garðabæjar um sumarstörf 2013.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi með öllum aðilum er komu að stjórnun sumarstarfa hjá bænum sem haldinn var í síðustu viku. Á fundinum var farið yfir helstu áherslur í starfsemi sumarins og hvað gekk vel og hvað gekk illa. Niðurstöður fundarins verða nýttar við undirbúning sumarstarfa fyrir sumarið 2014. Skýrslan lögð fram og rædd.

Málsnúmer 1310181

10

Bréf Steinunnar E. Kolbeinsdóttur, hdl. varðandi garðhýsi og atvinnustarfsemi að Holtsbúð 85, dags. 08.10.13.

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir staðsetningu geymsluskúrs sem er undir 10 m2 á lóðinni við Holtsbúð 85. Fram kom að viðkomandi skúr er við lóðarmörk en ekki í þriggja metra fjarlægð frá lóðarmörkum eins og reglur áskilja. Bæjarráð vísar til bæjarverkfræðing að kanna staðsetningu geymsluskúrs og tryggja að staðsetning hans verði í samræmi við heimildir og útgefið leyfi. Hvað varðar starfsemi á gæslu barna í heimahúsi er það skoðun bæjarráðs að slík starfsemi geti fallið undir heimildir í skipulagslögum enda verður að telja að slík starfsemi valdi almennt ekki óþægindum eða ónæði. Þá vísar bæjarráð einnig í þessu sambandi til ákvæða í VIII. kafla í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga og reglugerðar sem sett hefur verið á grundvelli þeirra um daggæslu í heimahúsum. Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara bréfinu.

Málsnúmer 1307042

11

Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.

Lagt fram yfirlit yfir álagningu útsvars og fasteignaagjalda ásamt yfirliti yfir helstu gjaldkrár.

Málsnúmer 1310106

12

Sala húsnæðið við Garðatorg 3

Bæjarráð samþykkir að heimila bæjarstjóra að samþykkja kauptilboð að fjárhæð kr. 14.000.000 í húsnæði í eigu bæjarins við Garðatorg.