Beint í efni

Ályktun fundar félags daggæslufulltrúa

Málsnúmer 1504098

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

10. fundur

Ályktun fundar félags daggæslufulltrúa sem send verður mennta- og menningarmálaráðuneyti og velferðarráðuneyti lögð fram.

Ályktun fundar félags daggæslufulltrúa lögð fram. Daggæslufulltrúar benda á mikilvægi þess að breyting verði gerð á reglugerð um daggæslu í heimahúsi sem er orðin tíu ára gömul. Einnig benda þeir á að dvöl barna hjá dagforeldrum telst vera almennt úrræði en ekki félagslegt og varpa fram þeirri hugmynd að málaflokkurinn eigi frekar heima undir mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Flest sveitarfélög hafa fært málaflokkinn undir fræðslumál. Í ályktunni eru talin upp nokkur atriði sem daggæslufulltrúar telja þurfi að breyta. Leikskólanefndin tekur undir með daggæslufulltrúum um að endurskoðunar sé þörf á reglugerðinni en að auknar kröfur til dagforeldra verði ekki íþyngjandi.