Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 8/9 ´15.

Málsnúmer 1509005F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (777). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., bréf Mannverks um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og fagnaði hugmyndum um að byggja minni íbúðir fyrir ungt fólk. Þá ræddi Steinþór 7. tl., bréf VJ varðandi hljóðvist við neðra Lundahverfi.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Mannverks um breytingu á deilskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og 10. tl., árshlutauppgjör Strætó jan - júlí 2015. Gunnar Valur gerði nánari grein fyrir afkomutölum og þróun helstu útgjaldaliða í rekstri Strætó bs.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Mannverks um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1.

Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.