Beint í efni

13. (777). fundur

17.09.2015
Bæjarstjórn Garðabæjar

13. (777). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

17.09.2015

Kl. 17:00 - 18:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Björg Fenger - varamaður
  • Kristinn Guðlaugsson - varamaður
  • Sigríður Björk Gunnarsdóttir - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður

Dagskrá

Málsnúmer 1509005F

01

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 8/9 ´15.

Steinþór Einarsson, ræddi 5. tl., bréf Mannverks um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og fagnaði hugmyndum um að byggja minni íbúðir fyrir ungt fólk. Þá ræddi Steinþór 7. tl., bréf VJ varðandi hljóðvist við neðra Lundahverfi.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 5. tl., bréf Mannverks um breytingu á deilskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1 og 10. tl., árshlutauppgjör Strætó jan - júlí 2015. Gunnar Valur gerði nánari grein fyrir afkomutölum og þróun helstu útgjaldaliða í rekstri Strætó bs.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Mannverks um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðarinnar við Lyngás 1.

Fundargerðin sem er 10 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1509012F

02

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 15/9 ´15.

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa starfshóp sem skal hafa það hlutverk að fylgja eftir ljósleiðaravæðingu til heimila, fyrirtækja og stofnana í bænum.“

Greinargerð:

Í dag er talið að um þriðjungur heimila geti tengst ljósleiðara og ekki eru áætlanir um að öll heimili geti tengst ljósleiðara fyrr en í fyrsta lagi árið 2019, gangi allt eftir.

Frá árinu 2006 til ársins 2014 hefur atvinnu- og tækniþróunarnefnd unnið að því verkefni að efla háhraðatengingar til heimila, fyrirtækja og stofnana í Garðabæ með litlum árangri. Við upphaf þessa kjörtímabils var atvinnu- og tækniþróunarnefnd lögð niður og verkefni nefndarinnar flutt til bæjarráðs.

Vegna þreifinga bæjarins við eitt fyrirtæki á markaði varðandi ljósleiðaravæðingu, er nauðsynlegt að setja málið í fastan farveg.

Þá ræddi Steinþór 10. tl., bréf Atlantsolíu um lóð undir sjálfsafgreiðslustöð í Hoðraholti.

Halldór Jörgensson, ræddi 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ og framkomna tilllögu. Halldór lýsti yfir stuðningi við tillöguna.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., drög að samningi við félagasamtök vegna afnota af húsnæði Bjarnastaða, 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ og framkomna tilllögu. Gunnar lýsti stuðningi við tillöguna og lagði til að vísa henni til bæjarráðs. Þá ræddi Gunnar Valur 9. tl., drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf fyrir börn og ungmenni, 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir veitingastað og 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1508034F

03

Fundargerð skólanefndar tónlistarskólans frá 3/9 ´15.

Kristinn Guðlaugsson, ræddi 3. tl., undirbúning að fjárhagsáætlun skólans fyrir árið 2016 og sagði það mikilvægt að huga að endurnýjun á hljóðfærakosti og öðrum búnaði fyrir skólann á næstu árum.

Sigríður Björk Gunnarsdóttir, ræddi 3. tl., fjárhagsáætlun 2016 og tók undir sjónarmið um að huga að endurnýjun á hljóðfæraeign skólans.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1508016F

04

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 2/9 ´15.

Sigríður Björk Gunnarsdóttir, ræddi 1. tl., velferð barna í Garðabæ og gerði grein fyrir kynningu á vegum Menntaklifs á verkefninu. Sigríður Björk sagði nánar frá umræðu um málið á fundi nefndarinnar, stöðu verkefnisins og næstu skrefum sem framundan eru.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1509003F

05

Fundargerð umhverfisnefndar frá 9/9 ´15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 6. tl., samgönguviku 2015.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1505190

06

Fundargerð eigendafundar Strætó bs. frá 31/8 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun Strætó bs. 2016. Gunnar Valur gerði nánari grein fyrir helstu forsendum áætlunarinnar og þróun einstakra kostnaðarliða í rekstri Strætó bs.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1502086

07

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 31/8 ´15.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1503138

08

Fundargerð SSH frá 7/9 ´15.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.

Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., ferðaþjónustu fatlaðs fólks.

Björg Fenger, ræddi 2. tl., undirbúning að snjóframleiðslu í Bláfjöllum.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 1. tl.

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., undirbúning að snjóframleiðslu í Bláfjöllum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1501125

09

Fundargerð Sorpu frá 7/9 ´15.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., drög að rekstraráætlun fyrir Sorpu og gerði grein fyrir helstu forsendum og fyrirhuguðum framkvæmdum við gas- og jarðgerðarstöð. Jóna ræddi einnig 2. tl., stefnumótun stjórnar, 4. tl., þátttökutilkynningar í forvali vegna framkvæmda við gas- og jarðgerðarstöð, 5. tl., kröfu Íslenska Gámafélagsins um afhendingu tiltekinna gagna í útboði á móttöku spilliefna. Þá greindi Jóna frá útboði vegna grenndargáma.

Fundargerðin lögð fram.