Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 15/9 ´15.

Málsnúmer 1509012F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

13. (777). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi tillögu:

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að skipa starfshóp sem skal hafa það hlutverk að fylgja eftir ljósleiðaravæðingu til heimila, fyrirtækja og stofnana í bænum.“

Greinargerð:
Í dag er talið að um þriðjungur heimila geti tengst ljósleiðara og ekki eru áætlanir um að öll heimili geti tengst ljósleiðara fyrr en í fyrsta lagi árið 2019, gangi allt eftir.
Frá árinu 2006 til ársins 2014 hefur atvinnu- og tækniþróunarnefnd unnið að því verkefni að efla háhraðatengingar til heimila, fyrirtækja og stofnana í Garðabæ með litlum árangri. Við upphaf þessa kjörtímabils var atvinnu- og tækniþróunarnefnd lögð niður og verkefni nefndarinnar flutt til bæjarráðs.
Vegna þreifinga bæjarins við eitt fyrirtæki á markaði varðandi ljósleiðaravæðingu, er nauðsynlegt að setja málið í fastan farveg.

Þá ræddi Steinþór 10. tl., bréf Atlantsolíu um lóð undir sjálfsafgreiðslustöð í Hoðraholti.

Halldór Jörgensson, ræddi 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ og framkomna tilllögu. Halldór lýsti yfir stuðningi við tillöguna.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 2. tl., drög að samningi við félagasamtök vegna afnota af húsnæði Bjarnastaða, 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ og framkomna tilllögu. Gunnar lýsti stuðningi við tillöguna og lagði til að vísa henni til bæjarráðs. Þá ræddi Gunnar Valur 9. tl., drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 9. tl., drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf fyrir börn og ungmenni.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., drög að samstarfssamningi við Klifið um tómstundastarf fyrir börn og ungmenni, 3. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna lóðar fyrir veitingastað og 6. tl., stöðu mála varðandi tengingu ljósleiðara fyrir stofnanir, fyrirtæki og heimili í Garðabæ.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.

Fundargerðin sem er 12 tl., er samþykkt samhljóða.