Undirbúningur að fjárhagsáætlun 2016
Málsnúmer 1509007
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
10. fundur
Skólastjóri lagði ríka áherslu á að mikilvægt sé að bæta og endurnýja hljóðfærakost skólans. Endurnýja þarf tré-, málmblástur- og strengjahljóðfæri sem leigð eru til nemenda. Þá þarf að auka við tölvukost skólans sérstaklega í hópkennslustofum. Að auki þarf að kaupa skjávarpa, tjald og hátalara í hópkennslustofur. Skólanefnd leggur mikla áherslu á að aukið fjármagn verði sett í hljóðfærakaup í fjárhagsáætlun 2016. Með stækkandi byggð má gera ráð fyrir aukinni aðsókn nemenda í skólanum og huga þarf að auknu hlutfalli stöðugilda.