Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 21/9 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
14. (778). fundur
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl. opinn íbúafund og lagði fram eftirfarandi tillögu:
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að semja reglur á grundvelli 1. mgr. 46. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2010 um að fundir fastanefnda bæjarstjórnar Garðabæjar verði almennt haldnir i heyrandi hljóði og opnir. Í reglunum skulu sett ákvæði um meðferð óska um opna fundi og skilyrði þess að heimilt sé að halda opna fundi.
Greinargerð:
Í Lýðræðisstefnu Garðabæjar segir m.a.: „Lýðræði og virkt samráð er einn af hornsteinum stjórnkerfisins í Garðabæ." Eitt af markmiðum stefnunnar er jafnframt að stuðla að auknum áhuga og þekkingu íbúa Garðabæjar á málefnum sveitarfélagsins.
Í nefndum bæjarins er fjallað um ólíka málaflokka sem tengjast þjónustu bæjarins og nærumhverfi íbúa. Þar eru mál lögð fram, tekist á um þau samkvæmt ákveðnum leikreglum og ákvarðanir teknar. Opinn aðgangur bæjarbúa að fundum nefnda væri vel til þess fallinn að auka áhuga og þekkingu á málefnum sveitarfélagsins og um leið til að styrkja lýðræðið. Það er því æskilegt að nefndarfundir séu opnir að því marki sem lög og málefnaleg sjónarmið leyfa.
Í 46. gr. sveitarstjórnarlaga segir: “Fundir nefnda skulu almennt haldnir fyrir luktum dyrum. Nefnd er heimilt að opna fundi sína komi fram ósk um slíkt svo fremi sem lög eða eðli máls hamli því ekki. Sveitarstjórn skal setja reglur um meðferð óska um opna fundi nefnda þar sem fram komi skilyrði opnunar."
Skýrar reglur um opna fundi eru til þess að auðvelda íbúum að setja fram ósk um opna fundi. Í reglunum skal vera ákvæði um að nefndarfundir og dagskrá þeirra séu auglýstir á vef Garðabæjar um leið og fundur nefndarinnar er boðaður. Á vefnum skal vera einfalt vefform sem hægt er að fylla út til að óska eftir því að viðkomandi fundur verði opinn.
Almenna reglan um meðferð óska um opna fundi verði að við þeim sé orðið nema lög hamli slíku eða formaður hafi málefnalegar ástæður til að hafna óskinni.
Sturla Þorsteinsson, ræddi framkomna tillögu og vakti athygli á sérstöðu fjölskylduráðs í sambandi við skilyrði fyrir opnum nefndarfundum.
Tillaga um að fela bæjarstjóra að semja drög að reglum um opna nefndarfundi samþykkt samhljóða.
Fundargerðin lögð fram.