Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 29/9 ´15.

Málsnúmer 1509041F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

14. (778). fundur

Sigurður Guðmundsson, ræddi 12. tl., greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að beina því til heilbrigðis- og fjármálaráðherra að kannaðir verið nánar kostir þess að byggja spítala í landi Vífilsstaða. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn áskorun til sömu aðila að koma að stefnumótun með bæjaryfirvöldum um landnotkun Vífilsstaðasvæðisins í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar fyrir tímabilið 2016-2030.“

Þá lagði Sigurður Guðmundsson fram eftirfarandi tillögu:

„Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu um aukinn sýnileika löggæslu í Garðabæ. Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að fara aftur af stað með fundarherferð tengda nágrannavörslu í Garðabæ og samhliða að kanna heimildir og kostnað við að setja upp færanlegar eftirlitsmyndavélar við innakstur hverfi bæjarins.“

Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og framkomna tillögu. Steinþór ræddi einnig tillögu um sýnileika löggæslu og nágrannavörslu.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 12. tl., greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og framkomna tillögu. Þá ræddi Jóna um tillögu um sýnileika löggæslu og nágrannavörslu og 16. tl., velferð barna í Garðabæ.

Súsanna Vilhjálmsdóttir, ræddi tillögu um sýnileika löggæslu.

Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl.,greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og framkomna tillögu.

Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl., greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og framkomna tillögu.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 12. tl., greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og framkomnar tillögur. Þá ræddi Gunnar Valur 13., tl., bréf Vegagerðarinnar varðandi yfirfærslu veghalds Álftanesvegar og 17. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi afnot af íþróttahúsinu Ásgarði til samkomuhalds. Gunnar Valur vék að þessu tilefni að ráðstefnu á vegum Kvenfélags Álftaness sem haldin var í íþróttahúsi Álftaness til að minnast 100 ára afmæli kosningarréttar kvenna. Gunnar Valur færði kvenfélaginu þakkir fyrir vel heppnaða ráðstefnu.

Ingvar Arnarson, ræddi 12. tl., greinargerð Samtaka um betri spítala um mögulega staðsetningu nýs spítala og framkomnar tillögur.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju framkomnar tillögur.

Gunnar Einarsson, ræddi tillögu um sýnileika löggæslu og nágrannavörslu.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 5. tl., skýrslu um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 15. tl., greinargerð um verkferla við útskrift nemenda úr grunnskóla og inngöngu í framhaldsskóla

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna framkvæmda við nýbyggingu parhúss við Bæjargötu 2 og 4. Ingvar Arnarson, situr hjá.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsi við Þrastanes 24. Ingvar Arnarson, situr hjá.

Tillaga um sýnileika löggæslu og nágrannavörslu var samþykkt samhljóða.

Tillaga um að huga að byggingu spítala og annarri uppbyggingu í landi Vífilsstaða samþykkt samhljóða.

Fundargerðin sem er 17 tl. er samþykkt samhljóða.