Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 1/12 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (782). fundur
María Grétarsdóttir, ræddi 10. tl., bréf Jakobstad um vinabæjamót í júlí 2016 og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Í umræðu um boð á vinabæjamót nk. sumar kom fram í máli bæjarstjóra að vinabæjamótin hafi verið heldur lágstemmd síðustu ár. Í því samhengi er rétt að rifja upp að á síðasta vinabæjamót (2014) fóru bæjarfulltrúarnir Erling Ásgeirsson og Steinþór Einarsson auk bæjarstjóra Gunnars Einarssonar ásamt mökum og nam heildarkostnaðurinn rúmum 800 þúsund krónum. Þegar Fólkið í bænum leitaði upplýsinga um hverjum hefði verið boðið að taka þátt í vinabæjamótinu kom fram að Gunnar Einarsson hefði hringt í minnihlutafulltrúa Steinþór og boðið honum ásamt maka með í för. Fólkið í bænum óskar eftir umræðu í bæjarráði og/eða bæjarstjórn um með hvaða hætti fulltrúar frá bænum verða valdir til þátttöku á vinabæjamót á árinu 2016.
Þá ræddi María 13. tl., fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi gagnsæja stjórnsýslu við kynningu á tillögu um staðsetningu á fjölnota íþróttahúsi og lagði fram eftirfarandi bókun.
„Fólkið í bænum sendi inn erindi til bæjarráðs varðandi hvort jafnræðisreglur almennrar stjórnsýslu hafi verið brotnar hjá bænum þar sem meirihlutinn virtist búinn að kynna fyrirhugaðar framkvæmdir við fjölnota knatthús (hálft hús) á Ásgarðssvæði, sem settar eru fram í fjárhagsáætlun 2016-2019, fyrir einungis hluta af bæjarfulltrúum þ.e. öllum öðrum en fulltrúa Fólksins í bænum. Bæjaryfirvöld höfðu látið teikna að nýju fjölnota íþróttahús á Ásgarðssvæði, hálft hús, en forsvarsmenn Stjörnunnar lögðu fram þá sáttatillögu að byrjað yrði á hálfu húsi og það síðar stækkað í heilt hús. Teikningar af þessu hálfa húsi voru kynntar fyrir forsvarsmönnum Stjörnunnar auk hluta af bæjarstjórn eins og áður segir. Meirihluti bæjarráðs auk bæjarritara og bæjarstjóra taldi ekkert athugunarvert við framangreind vinnubrögð og fól bæjarstjóra að svara erindinu formlega.
Fólkið í bænum vill ítreka að í siðareglum fyrir kjörna fulltrúa í Garðabæ er tekið fram að bæjarfulltrúar skuli í störfum sínum koma fram af háttvísi. Þeim beri að forðast að hafast nokkuð að sem getur varpað rýrð á störf þeirra eða Garðabæ. Kjörnum fulltrúum beri að starfa af kostgæfni, fyrir opnum tjöldum og vera reiðubúnir að rökstyðja ákvarðanir sínar. Kjörnir fulltrúar skuli sýna störfum og réttindum annarra kjörinna fulltrúa Garðabæjar og starfsmanna bæjarins virðingu.“
Steinþór Einarsson ræddi 13. tl., fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi gagnsæja stjórnsýslu við kynningu á tillögu um staðsetningu á fjölnota íþróttahúsi.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 13. tl., fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi gagnsæja stjórnsýslu við kynningu á tillögu um staðsetningu á fjölnota íþróttahúsi.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 13. tl., fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi gagnsæja stjórnsýslu við kynningu á tillögu um staðsetningu á fjölnota íþróttahúsi.
Halldór Jörgensson, ræddi 13. tl. fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi gagnsæja stjórnsýslu við kynningu á tillögu um staðsetningu á fjölnota íþróttahúsi.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna Kauptúns og gerði grein fyrir íbúafundum um kynningu á endurskoðun aðalskipulags.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða