Fyrirspurn vegna lóðar við Miðskóga á Álftanesi
Málsnúmer 1511068
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
17. fundur
Lögð fram fyrirspurn um óbyggt svæði milli Sólbarðs og Hleinar á Álftanesi og hvort að þar verði heimilað að reisa byggingu og þá hver byggingarreiturinn sé og hve hátt leyfilegt byggingarmagn sé. Svar: Á svæðinu er ekkert deiliskipulag í gildi og því ekki hægt að gefa upp hver lóðarmörk séu eða hve mikið megi hugsanlega byggja á lóðinni. Í aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem íbúðarbyggð. Ef hægt á að vera að veita byggingarleyfi á lóðinn þyrfti að grenndarkynna byggingarleyfis umsókn í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga. Þá þarf tillagan að vera í samræmi við landnotkun, byggðamynstur og þéttleika aðliggjandi byggðar.