Fundargerð afmælisnefndar Garðabæjar frá 14/9 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
1. (784). fundur
Sigríður Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi tillögu.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir í tilefni af 40 ára afmæli sveitarfélagsins að kynna hina fornu leið, Fógetastíg í Gálgahrauni. Fógetastígurinn var allt fram á síðustu áratugi 19. aldar alfaraleið gangandi og ríðandi manna vestur á Álftanes og er einnig kallaður Álftanesgata. Einnig verði horft til svokallaðs Sakamannastígs sem lá frá Fógetastígnum að Gálgaklettum og annarra fornra leiða í hrauninu.“
Greinargerð:
Gálgahraun var friðlýst árið 2009. Í framhaldi af því var Fógetastígurinn stikaður ásamt því að sett voru upp fræðsluskilti með kortum sem sýna legu hans. Í dag sjást greinilegir troðningar þar sem stígurinn lá á kafla en annars staðar er leiðin óljós. Vegna friðlýsingarinnar er ekki gert ráð fyrir óafturkræfum framkvæmdum við stíginn en að unnið verði markvisst að því að gera hann greiðfærari fyrir almenning til útivistar.
Í Sögu Garðabæjar eftir Steinar J. Lúðvíksson segir m.a. um Fógetastíginn:
Alfaraleið út á Álftanes hófst við Hraunsvik. Þaðan var haldið út á úfið hraunið og hefur sú leið ekki verið greiðfær í fyrstu en smám saman tróðust slóðir sem urðu sæmilega sléttar og vel færar fyrir gangandi og ríðandi menn. Þessi slóði nefndist Álftanesgata en fékk fleiri nöfn þegar tímar liðu og er nú oftast nefndur Fógetagata? Á löngum köflum leiðarinnar sjást djúpir troðningar sem eru eins og geil í hraunið um, 1 metra djúp og 1-2 metra breið. Ber slóðinn það með sér að hafa verið fjölfarinn.
Gálgahraun er nyrsti hluti svokallaðra Búrfellshrauna sem runnu frá eldstöðinni Búrfelli fyrir rúmum 7000 árum. Verndargildi Gálgahrauns liggur ekki síst í því hversu ósnortið það er þótt það sé orðið algróið fjölbreyttum gróðri. Í hrauninu eru margar menningarminjar, þ.á.m. fornar leiðir, Garðastekkur í hraunjaðrinum og aftökustaðurinn Gálgaklettur.
Á 40 ára afmælisári Garðabæjar er vel við hæfi að vekja athygli á Gálgahrauni og þeim minjum sem þar er að finna. Fógetastígurinn hefur ekki síst það gildi fyrir Garðbæinga í dag að vera forn leið sem tengir saman sveitarfélögin tvö Álftanes og Garðabæ, sem nú hafa sameinast í eitt. Sögulegt gildi stígsins er auk þess ótvírætt.
Til að kynna Fógetastíginn verði m.a. boðið til gönguferðar með leiðsögn eftir stígnum, frá Hraunsviki út á Álftanes. Einnig verði gefinn út fræðslubæklingur á pappír og/eða rafrænu formi til að miðla sögulegum upplýsingum til almennings, ferðamanna og skólahópa sem njóta þess að fara um svæðið. Þegar eru til fornleifaskráningar, rannsókn og örnefnalýsingar um svæðið unnar af Ragnheiði Traustadóttur fornleifafræðingi. Sú vinna mun nýtast sem grunnur að texta í fræðslubækling. Fleiri leiðir til að kynna stíginn og aðrar minjar í Gálgahrauni verði skoðaðar þegar líður á árið.
María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu.
Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu. Áslaug Hulda ræddi einnig störf afmælisnefndar og greindi frá hugmyndum um viðburði á árinu í tilefni afmælis bæjarins.
Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu. Þá ræddi Steinþór störf afmælisnefndar og lagði fram eftirfarandi fyrirspurn.
„Í janúar á síðasta ári var tillögu undirritaðs þess efnis, - að bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti að skipa starfshóp sem hefði það hlutverk að fylgja eftir tillögu um byggingu minjaskála við Hofsstaði, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í ársbyrjun 2001 - vísað til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkti síðan að menningar- og safnanefnd tæki hlutverk starfshópsins og fylgdi tillögunni eftir.
Hver er staðan á vinnu menningar- og safnanefndar og hvenær má eiga von á tillögum?“
Gunnar Valur Gíslason, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu. Þá ræddi Gunnar Valur framkomna fyrirspurn og gerði grein fyrir umfjöllun menningar- og safnanefndar varðandi tillögu um byggingu minjaskála.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs og ræddi framkomna tillögu. Þá ræddi bæjarstjóri framkomna fyrirspurn.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um kynningu á Fógetastíg.
Fundargerðin er lögð fram.