Staða kjarasamnings við félag tónlistarskólakennara
Málsnúmer 1611202
Ferill máls
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
01
16. fundur
Formaður sagði frá fundi hans og bæjarstjóra með kennurum tónlistarskólans miðvikudaginn 16. nóvember. Á þeim fundi fór trúnaðarmaður kennara m.a. yfir launaþróun tónlistarskólakennara undanfarin ár og stöðuna í samningum. Kennarar hafa verið samningslausir frá 1. nóvember 2015. Skólanefnd lýsir yfir áhyggjum af stöðu mála og hvetur samninganefndir til að komast að góðri lausn hið fyrsta þannig að viðunandi samningar náist.