Fundargerð bæjarráðs frá 28/11 ´17.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (821). fundur
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. tl., vinnuumhverfi ? viðbrögð gagnvart kynferðisofbeldi og áreiti á vinnustöðum og lagði fram eftirfarandi tillögu sem hún flytur ásamt Sturlu Þorsteinssyni.
„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir, í kjölfar #metoo byltingar hér á landi og um heim allan, að Garðabær fylgi á eftir með enn frekari fræðslu fyrir starfsmenn og ungmenni í Garðabæ en hingað til hefur verið gert. Forstöðumenn sveitarfélagsins fá fræðslu, leiðbeiningar og ráðgjöf um málaflokkinn. Bæjarstjórn samþykkir að auk þess muni Garðabær styðja við frjáls félög í sveitarfélaginu með fræðslu og námskeiðshaldi til vitundarvakningar innan félaganna og jafnframt til að efla ferla sem unnið verður eftir ef slík mál koma upp.“
Greinargerð
Með ályktun sinni vill bæjarstjórn Garðabæjar styðja við þá #metoo byltingu sem konur í stjórnmálum á Íslandi hafa leitt undir merkjum ,,Í skugga valdsins“ og sem fleiri hópar hafa fylgt eftir í kjölfarið. Umræðan er mikilvæg og löngu tímabær. Kynferðisleg áreitni og ofbeldi á aldrei að líða.
Garðabær hefur áður sett sér stefnu er varðar einelti, kynferðislega áreitni, kynbundið áreiti og ofbeldi á vinnustað, ásamt viðbragðsáætlun ef slíkt kemur upp.
#metoo er hugarfarsbylting og henni þarf að fylgja eftir. Samhliða þurfa viðbrögð og ferlar að vera eins og best verður á kosið.
Börn og ungmenni eru sérstaklega berskjölduð gegn hvers kyns ofbeldi og því er mikilvægt að horft sé sérstaklega hvernig málum er háttað í skólum sveitarfélagsins og innan frjálsra félagasamtaka þar sem börn og ungmenni eru.
Steinþór Einarsson, ræddi framkomna tillögu.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju framkomna tillögu.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi framkomna tillögu.
Fundargerðin sem er 11 tl., er samþykkt samhljóða.