Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 5/12 ´17.

Málsnúmer 1712001F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

19. (821). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 2. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi undirbúning framkvæmda við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi milli gatnamóta við Vífilsstaðaveg og Lyngás.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda vegna svæðis við gatnamót Hafnarfjarðarvegar og Lyngáss og hrósaði bæjarstarfmönnum fyrir snögg viðbrögð við að fjarlægja hluta skjólveggjar sem skyggði á umferð gangandi fólks og hjólreiðamanna á gatnamótunum. Þá ræddi Áslaug Hulda stöðu bílastæðamála á Garðatorgi og nauðsyn á samvinnu við lögreglu vegna innbrota í bíla o.fl.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 2. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi undirbúning framkvæmda við endurbætur á Hafnarfjarðarvegi milli gatnamóta við Vífilsstaðaveg og Lyngás og 9. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu fyrir deiliskipulagsáfanga á Lyngássvæði.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 22. tl., bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun plasts til endurvinnslu og 23. tl., bréf Sorpu bs. varðandi viðræður við Kölku (Sorpeyðingarstöð Suðurnesja) um mögulega sameiningu.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 22. tl., bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun plasts til endurvinnslu.

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 22. tl., bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun plasts til endurvinnslu.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 9. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi verkefnalýsingu fyrir deiliskipulagáfanga á Lyngássvæði og vék að húsnæðismálum Alþjóðaskólans sem nú hefur fengið aðstöðu í Þórsmörk sem er í jaðri skipulagssvæðisins. Sigríður Hulda greindi frá því að skólinn hefur áhuga á að kanna möguleika á varanlegu húsnæði á svæðinu. Þá ræddi Sigríður Hulda 22. tl., bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun plasts til endurvinnslu.

Steinþór Einarsson, ræddi 22. tl., bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun plasts til endurvinnslu.

Sturla Þorsteinsson, ræddi að nýju 22. tl., bréf Sorpu bs. varðandi móttöku og flokkun plasts til endurvinnslu.

Fundargerðin sem er 29 tl., er samþykkt samhljóða.