Beint í efni

Davíð Bjarni Björnsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Málsnúmer 1801076

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

37. fundur

Á árinu 2017 náði Davíð Bjarni Björnsson þeim árangri að verða Íslandsmeistari karla í tvíliðaleik ásamt því að hafna í öðru sæti í tvendarleik ásamt makker sem hann var að spila með í einungis annað skipti.
Náði að sigra í tvíliðaleik ásamt makker á hverju einasta móti innan efstu mótaraðar Badmintonsambandsins og endaði árið í fyrsta sæti styrkleikalista sambandsins í tvíliðaleik.
Var valinn í landslið Íslands sem mun taka þátt á heimsmeistaramóti landsliða, Thomas & Uber Cup, sem fram fer í Kazan, Rússlandi, í febrúar 2018.
Í apríl, 2017, vann hann allar greinarnar á sínu síðasta Íslandsmóti unglinga í flokki undir 19 ára og varð þar með þrefaldur Íslandsmeistari unglinga.
Tók þátt í þó nokkrum alþjóðlegum mótum á Íslandi, Noregi, Lettlandi, Litháen, Króatíu og Ítalíu. Stóð þar upp úr að ná í 8-liða úrslit í Lettlandi og á Íslandi sem að telst virkilega góður árangur miðað við ungan aldur.
Í lok árs var hann númer 253 á heimslistanum í tvíliðaleik eftir einungis fimm alþjóðleg mót, en 10 bestu mót einstaklings/pars mótar heildar stig hans á listanum. Því er augljóst að með auknu fjármagni og mótasók erlendis væri vel mögulegt að klífa heimslistann mikið hærra og stefna í efstu röð.

ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til TBR vegna Davíðs Bjarna Björnssonar kt. 0905982529 landsliðsmanns í badminton.

Fylgiskjöl