37. fundur
37. fundur
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
í íþróttamiðstöðinni Ásgarði
14.02.2018
Kl. 17:00 - 18:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Ásgrímur Gunnarsson - aðalmaður
- Hilmar Daði Bjarnason - aðalmaður
- Sigrún María Jörundsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Kári Jónsson - íþróttafulltrúi
Ritari
- Kári Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1801288
01
Sigurður Arnar Garðarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Sigurður Arnar Garðarsson kt. 260202-2430, er eitt okkar besta efni hér á landi. Hann hefur verið í unglingalandsliði Íslands í golfi frá unga aldri og unnið samtals 5 íslandsmeistaratitla í unglingaflokki og var nú Íslandsmeistari klúbba bæði í meistaraflokki GKG og eins í unglingaflokki GKG. Sigurður Arnar er í meistaraflokki GKG.
Sigurður Arnar vann á síðasta ári mót í Þýskalandi, var í 4 sæti í Skotlandi í flokki 15-18 ára, var í 2 sæti nú um jólin í flokki 18 ára og yngri en það voru fleiri mót erlendis þar sem hann gerði mjög góða hluti.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til GKG vegna Sigurður Arnar Garðarsson kt. 260202-2430
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801287
02
Ragnar Már Garðarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ragnar Már Garðarsson kt. 030895-2319 er meðal fremstu kylfinga landsins og er í A landsliði Íslands, sem er einungis skipað 6 fremstu áhugamönnum landsins. Hann er margfaldur Íslandsmeistari í unglingaflokkum, vann hið sterka mót Duke of York 17.ára gamall í Englandi og leggur mjög hart að sér við að verða betri golfari.
Hér heima hefur Ragnar Már verið sigursæll á Eimskipsmótaröðinni en á þeirri mótaröð taka allir sterkustu kylfingar landsins þátt. Ragnar hefur einnig mikla reynslu í alþjóðlegum keppnum, bæði fyrir landslið og háskólalið, og sem einstaklingur.
Hans markmið er að komast á PGA og spila með þeim bestu í heiminum. Ragnar Már er mjög góð fyrirmynd, er yfirvegaður, kurteis, hlýr og gefandi strákur. Hann hefur alist upp í Garðabæ, GKG er hans heimavöllur þar sem hann hefur verið meðlimur nánast frá fæðingu því hann byrjaði mjög ungur að spila golf.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til GKG vegna
Ragnar Már Garðarsson kt. 030895-2319
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801255
03
Irma Gunnarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ég hér undirrituð sæki um afreksstyrk vegna þátttöku í mótum og æfingabúðum árið 2018. Ég æfi frjálsar íþróttir með Breiðablik, þar sem Stjarnan er ekki með æfingadeild í frjálsum íþróttum en ég er Garðbæingur og stunda nám við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.
Það eru mörg mót framundan í sumar. Ég mun keppa á mörgum mótum innanlands en stærstu mótin eru meistaramót fullorðna í stökum greinum, meistaramót unglinga 15-22 ára og svo meistaramót í fjölþraut. Ég stefni á Íslandsmeistaratitla á þessum mótum. Einnig eru erlend mót sem ég keppi í á Norðurlandamótinu í fjölþrautum sem haldið verður í Noregi. Norðurlandamótið í stökum greinum er undir 23 ára. Ásamt því ætla ég að fara á þrautamót í Skotlandi að keppa í sjö þraut.
Til undirbúningar fyrri þessi mót sumarsins mun ég fara í æfingabúðir til Spánar um páskana.
Það er mikill kostnaður samfara þátttöku í æfingabúðum og þessum mótum og því sæki ég um styrk.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks vegna Irmu Gunnarsdóttur kt.040298-2319
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802041
04
Freydís Halla Einarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Með erindi þessu leita ég eftir stuðningi vegna þátttöku á Ólympíuleikunum 2018 í Suður Kóreu.
Ég er 23 ára, æfi og keppi fyrir háskóla í Bandaríkjunum, Skíðadeild Ármanns og er A-landsliði Íslands á skíðum. Ég var nú í janúar valin til þess að vera einn af keppendum Íslands á Ólympíuleikunum í febrúar 2018. Það er hvor tveggja í senn mikill heiður og viðurkenning en hins vegar er verkefnið verðug áskorun. Meginmarkmið mitt hefur ávallt verið að verða betri íþróttamaður og gera betur í dag en í gær. Fyrir hvert ár hef ég sett mér markmið sem ég hef einbeitt mér að ná og hefur það gefist vel. Þannig hef ég stöðugt bætt árangur minn sem hefur verið mér hvatning til frekari æfinga. Með þetta að leiðarljósi er ég sannfærð um að geta verið verðugur keppandi fyrir Ísland á stórmótum eins og Heimsmeistaramóti og Ólympíuleikum. Á næsta ári er Heimsmeistaramót sem verður nýtt og verðugt verkefni þegar þessu tímabili lýkur.
Kostnaður, æfinga- og keppnisáætlun
Í meðfylgjandi töflu hef ég tekið saman æfinga- og keppnisáætlun mína erlendis á yfirstandandi tímabili og áætlaðan kostnað vegna þess. Áætlunin tekur mið af undirbúningi fyrir Ólympíuleikana og verður krefjandi þar sem það verða heldur fleiri ferðalög. Á Íslandi eru þetta 2-3 landsliðsæfingar hvort heldur á snjó eða í þrekæfingabúðir. Um veturinn held ég til, æfi og keppi á austurströnd USA en þar þarf ég að greiða allan kostnað þar sem háskólinn býður ekki upp á íþróttastyrki.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 200.000,- í afreksstyrk til Skíðadeildar Ármanns vegna Freydísar Höllu Einarsdóttur ólympíufara.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802008
05
Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Pétur Fannar Gunnarsson hefur æft dans frá 3ja ára aldri. Hann er 19 ára og hefur átt glæsilegan feril í gengum árin. Þessu fylgja mikil og ströng ferðalög og æfingar bæði hér heima sem erlendis. Hann dansar við Polina Odd frá Úkraínu sem er aðeins 17 ára og eru þau bæði búsett hér í Garðabæ. Þau æfa og keppa með Dansfélagi Reykjavíkur. Pétur keppir bæði í aldursflokki undir 21 árs og flokki fullorðinna í latin dönsum. Hann hefur verið í A landsliði síðastliðin 2 ár.
Pétur Fannar og Polina Odd urðu heimsmeistarar í suður amerískum dönsum undir 21 árs, en Heimsmeistaramótið WDC fór fram í París 11. desember. Þetta frábæra danspar skráði þar með nýtt afrek í sögubækur landsins en Pétur og Polina unnu einnig HM 2016 og eru því einu Íslendingarnir sem hafa unnið heimsmeistaratitil tvö ár í röð. Þau sigruðu International Championship í október og urðu í 2. sæti í Blackpool. Þau sigruðu einnig RIG og urðu Íslandsmeistarar á árinu. Auk þessa unnu þau sigur á Lotto Open nú í nóvember.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til Dansíþróttafélags Reikjavíkur vegna Pétur Fannar Gunnarsson kt. 0402982159.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1802007
06
Alex Freyr Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Alex Freyr Gunnarsson ( Ferilskrá )
18 Jan 2018 UK Open 2018 England - Bournemouth Amateur Ballroom 10th.
14 Oct 2017 London Ball 2017 England - London SL Amateur WTVFQ Ballroom 7th.
11 Oct 2017 International Championships England - London Amateur Ballroom 9th.
17 Jun 2017 German Open Championship Germany - Mannheim Adult Standard 3rd.
04 Jun 2017 Vilnius Dance Festival 2017 Lithuania - Vilnius Adult Open Standard 1st.
31 May 2017 Blackpool Dance Festival 2017 England - Blackpool Amateur Ballroom 9th.
13 May 2017 Freedom to Dance 2017 England - Copthorne Amateur Ballroom 5th.
06 May 2017 Icelandic Championships 2017 Iceland Amateur WTVFQ Standard 1st
22 Apr 2017 Bad Homburg International Germany - Bad Homburg Amateur Standard 3rd.
16 Apr 2017 WDC Amateur Ballroom European Championships 3rd.
01 Apr 2017 WDC Polish Cup 2017 Poland - Mierzyn Amateur Standard 1st.
28 Feb 2017 ADO Asian Tour - Taipei Open Championship Amateur Ballroom 3rd.
26 Feb 2017 Asian Open Championships 2017 Japan - Tokyo Amateur Ballroom 3rd.
19 Jan 2017 UK Open 2017 England - Bournemouth Amateur Ballroom 7th.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til Dansíþróttafélags Reykjavíkur vegna Alex Freys Gunnarssonar kt. 0401934059.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801076
07
Davíð Bjarni Björnsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Á árinu 2017 náði Davíð Bjarni Björnsson þeim árangri að verða Íslandsmeistari karla í tvíliðaleik ásamt því að hafna í öðru sæti í tvendarleik ásamt makker sem hann var að spila með í einungis annað skipti.
Náði að sigra í tvíliðaleik ásamt makker á hverju einasta móti innan efstu mótaraðar Badmintonsambandsins og endaði árið í fyrsta sæti styrkleikalista sambandsins í tvíliðaleik.
Var valinn í landslið Íslands sem mun taka þátt á heimsmeistaramóti landsliða, Thomas & Uber Cup, sem fram fer í Kazan, Rússlandi, í febrúar 2018.
Í apríl, 2017, vann hann allar greinarnar á sínu síðasta Íslandsmóti unglinga í flokki undir 19 ára og varð þar með þrefaldur Íslandsmeistari unglinga.
Tók þátt í þó nokkrum alþjóðlegum mótum á Íslandi, Noregi, Lettlandi, Litháen, Króatíu og Ítalíu. Stóð þar upp úr að ná í 8-liða úrslit í Lettlandi og á Íslandi sem að telst virkilega góður árangur miðað við ungan aldur.
Í lok árs var hann númer 253 á heimslistanum í tvíliðaleik eftir einungis fimm alþjóðleg mót, en 10 bestu mót einstaklings/pars mótar heildar stig hans á listanum. Því er augljóst að með auknu fjármagni og mótasók erlendis væri vel mögulegt að klífa heimslistann mikið hærra og stefna í efstu röð.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til TBR vegna Davíðs Bjarna Björnssonar kt. 0905982529 landsliðsmanns í badminton.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801089
08
Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar - Erla Rán Eiríksdóttir
Varsjá og San Marino, blaklandslið 23. maí 2017
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Erlu Ránar Eiríksdóttur kt. 0702902869
Varsjá og San Marino, blaklandslið 23. maí 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801152
09
Freydís Halla Einarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Vegna HM í Sviss í febrúar 2017
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Freydísra Höllu Einarsdóttur kt. 0310942329
Vegna HM í Sviss í febrúar 2017
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801151
10
Freydís Halla Einarsdóttir - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Undirbúningsferð landsliðsins á skíðum vegna ÓL til Austurríkis í október 2017.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Freydísra Höllu Einarsdóttur kt. 0310942329
Undirbúningsferð landsliðsins á skíðum vegna ÓL, til Austurríkis í október 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801261
11
Sigurður Arnar Garðarsson - Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
American Juniors, desember 2017, GSÍ.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Sigurðar Arnars Garðarssonar kt. 2602022430
American Juniors, desember 2017, GSÍ.
Málsnúmer 1801260
12
Sigurður Arnar Garðarsson- Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
European Championship í Skotlandi í maí 2017, GSÍ.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Sigurðar Arnars Garðarssonar kt. 2602022430
European Championship í Skotlandi í maí 2017, GSÍ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801354
13
Kristín Valdís Örnólfsdóttir Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Riga Volvo Cup 2017 í ísdansi, nóvember 2017.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Kristín Valdís Örnólfsdóttir kt. 2607983249
Riga Volvo Cup 2017 í ísdansi, nóvember 2017.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801355
14
Arna Sólrún Heimisdóttir Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
1. umferð í undankeppni í Evrópumóti unglinga í blaki, í janúar 2018 BLÍ.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Arna Sólrún Heimisdóttir kt. 1401022020
undankeppni í Evrópumóti unglinga í blaki, í janúar 2018 BLÍ.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1801356
15
Arna Sólrún Heimisdóttir Umsókn um ferðastyrk íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
2. umferð undankeppni í Evrópumóti unglinga í blaki, 13-17 apríl 2017.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 20.000,- í ferðastyrk til Arna Sólrún Heimisdóttir kt. 1401022020
2. umferð undankeppni í Evrópumóti unglinga í blaki, 13-17 apríl 2017.