Pétur Fannar Gunnarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
37. fundur
Pétur Fannar Gunnarsson hefur æft dans frá 3ja ára aldri. Hann er 19 ára og hefur átt glæsilegan feril í gengum árin. Þessu fylgja mikil og ströng ferðalög og æfingar bæði hér heima sem erlendis. Hann dansar við Polina Odd frá Úkraínu sem er aðeins 17 ára og eru þau bæði búsett hér í Garðabæ. Þau æfa og keppa með Dansfélagi Reykjavíkur. Pétur keppir bæði í aldursflokki undir 21 árs og flokki fullorðinna í latin dönsum. Hann hefur verið í A landsliði síðastliðin 2 ár.
Pétur Fannar og Polina Odd urðu heimsmeistarar í suður amerískum dönsum undir 21 árs, en Heimsmeistaramótið WDC fór fram í París 11. desember. Þetta frábæra danspar skráði þar með nýtt afrek í sögubækur landsins en Pétur og Polina unnu einnig HM 2016 og eru því einu Íslendingarnir sem hafa unnið heimsmeistaratitil tvö ár í röð. Þau sigruðu International Championship í október og urðu í 2. sæti í Blackpool. Þau sigruðu einnig RIG og urðu Íslandsmeistarar á árinu. Auk þessa unnu þau sigur á Lotto Open nú í nóvember.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til Dansíþróttafélags Reikjavíkur vegna Pétur Fannar Gunnarsson kt. 0402982159.