Irma Gunnarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
37. fundur
Ég hér undirrituð sæki um afreksstyrk vegna þátttöku í mótum og æfingabúðum árið 2018. Ég æfi frjálsar íþróttir með Breiðablik, þar sem Stjarnan er ekki með æfingadeild í frjálsum íþróttum en ég er Garðbæingur og stunda nám við Fjölbrautaskólann í Garðabæ.
Það eru mörg mót framundan í sumar. Ég mun keppa á mörgum mótum innanlands en stærstu mótin eru meistaramót fullorðna í stökum greinum, meistaramót unglinga 15-22 ára og svo meistaramót í fjölþraut. Ég stefni á Íslandsmeistaratitla á þessum mótum. Einnig eru erlend mót sem ég keppi í á Norðurlandamótinu í fjölþrautum sem haldið verður í Noregi. Norðurlandamótið í stökum greinum er undir 23 ára. Ásamt því ætla ég að fara á þrautamót í Skotlandi að keppa í sjö þraut.
Til undirbúningar fyrri þessi mót sumarsins mun ég fara í æfingabúðir til Spánar um páskana.
Það er mikill kostnaður samfara þátttöku í æfingabúðum og þessum mótum og því sæki ég um styrk.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks vegna Irmu Gunnarsdóttur kt.040298-2319