Freydís Halla Einarsdóttir - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar
Ferill máls
Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar
01
37. fundur
Með erindi þessu leita ég eftir stuðningi vegna þátttöku á Ólympíuleikunum 2018 í Suður Kóreu.
Ég er 23 ára, æfi og keppi fyrir háskóla í Bandaríkjunum, Skíðadeild Ármanns og er A-landsliði Íslands á skíðum. Ég var nú í janúar valin til þess að vera einn af keppendum Íslands á Ólympíuleikunum í febrúar 2018. Það er hvor tveggja í senn mikill heiður og viðurkenning en hins vegar er verkefnið verðug áskorun. Meginmarkmið mitt hefur ávallt verið að verða betri íþróttamaður og gera betur í dag en í gær. Fyrir hvert ár hef ég sett mér markmið sem ég hef einbeitt mér að ná og hefur það gefist vel. Þannig hef ég stöðugt bætt árangur minn sem hefur verið mér hvatning til frekari æfinga. Með þetta að leiðarljósi er ég sannfærð um að geta verið verðugur keppandi fyrir Ísland á stórmótum eins og Heimsmeistaramóti og Ólympíuleikum. Á næsta ári er Heimsmeistaramót sem verður nýtt og verðugt verkefni þegar þessu tímabili lýkur.
Kostnaður, æfinga- og keppnisáætlun
Í meðfylgjandi töflu hef ég tekið saman æfinga- og keppnisáætlun mína erlendis á yfirstandandi tímabili og áætlaðan kostnað vegna þess. Áætlunin tekur mið af undirbúningi fyrir Ólympíuleikana og verður krefjandi þar sem það verða heldur fleiri ferðalög. Á Íslandi eru þetta 2-3 landsliðsæfingar hvort heldur á snjó eða í þrekæfingabúðir. Um veturinn held ég til, æfi og keppi á austurströnd USA en þar þarf ég að greiða allan kostnað þar sem háskólinn býður ekki upp á íþróttastyrki.
ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 200.000,- í afreksstyrk til Skíðadeildar Ármanns vegna Freydísar Höllu Einarsdóttur ólympíufara.