Beint í efni

Ragnar Már Garðarsson - Umsókn um styrk úr afrekssjóði íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar

Málsnúmer 1801287

Ferill máls

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar

01

37. fundur

Ragnar Már Garðarsson kt. 030895-2319 er meðal fremstu kylfinga landsins og er í A landsliði Íslands, sem er einungis skipað 6 fremstu áhugamönnum landsins. Hann er margfaldur Íslandsmeistari í unglingaflokkum, vann hið sterka mót Duke of York 17.ára gamall í Englandi og leggur mjög hart að sér við að verða betri golfari.
Hér heima hefur Ragnar Már verið sigursæll á Eimskipsmótaröðinni en á þeirri mótaröð taka allir sterkustu kylfingar landsins þátt. Ragnar hefur einnig mikla reynslu í alþjóðlegum keppnum, bæði fyrir landslið og háskólalið, og sem einstaklingur.
Hans markmið er að komast á PGA og spila með þeim bestu í heiminum. Ragnar Már er mjög góð fyrirmynd, er yfirvegaður, kurteis, hlýr og gefandi strákur. Hann hefur alist upp í Garðabæ, GKG er hans heimavöllur þar sem hann hefur verið meðlimur nánast frá fæðingu því hann byrjaði mjög ungur að spila golf.

ÍTG samþykkti á fundi sínum 14. febrúar að veita kr. 100.000,- í afreksstyrk til GKG vegna
Ragnar Már Garðarsson kt. 030895-2319

Fylgiskjöl