Þróunarsjóður grunnskóla - yfirlit yfir úthlutun 2015-2018
Málsnúmer 1805114
Ferill máls
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
01
44. fundur
Skólanefnd lýsir yfir ánægju með fjölda umsókna í þróunarsjóð á kjörtímabilinu og þau jákvæðu og hvetjandi áhrif sem þróunarsjóður hefur haft á starf einstakra skóla sem og samstarf skóla á milli. Skóladeild falið að senda könnun til kennara og fagaðila í öllum skólunum til að kanna þau áhrif sem þróunarsjóður hefur haft á skólastarf.