Beint í efni

44. fundur

14.05.2018
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

44. fundur

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

í Garðabæ

14.05.2018

Kl. 17:00 - 20:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Kjartan Örn Sigurðsson - aðalmaður
  • Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
  • Hildur Jakobína Gísladóttir - aðalmaður
  • Hlíf Böðvarsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
  • Elísa Ösp Valgeirsdóttir - fulltrúi kennara
  • Andrea Róbertsdóttir - fulltrúi foreldra
  • Kristín Sigurðardóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Kristín Sigurðardóttir

Fundurinn verður haldinn að heimili Jóhanns Steinars Ingimundarsonar, varaformanns skólanefndar, að Heiðarlundi 9 í Garðabæ.

Dagskrá

Málsnúmer 1804084

01

Ungt fólk og lýðræði 2018

Ályktun frá ungmennaráðstefnu UMFÍ lögð fram til kynningar. Skólanefnd fagnar því að ungemenni hafi vettvang til að ræða samfélagsleg málefni og koma skoðunum sínum á framfæri með þessum hætti.

Málsnúmer 1805114

02

Þróunarsjóður grunnskóla - yfirlit yfir úthlutun 2015-2018

Skólanefnd lýsir yfir ánægju með fjölda umsókna í þróunarsjóð á kjörtímabilinu og þau jákvæðu og hvetjandi áhrif sem þróunarsjóður hefur haft á starf einstakra skóla sem og samstarf skóla á milli. Skóladeild falið að senda könnun til kennara og fagaðila í öllum skólunum til að kanna þau áhrif sem þróunarsjóður hefur haft á skólastarf.

Málsnúmer 1805117

03

Störf skólanefndar 2014-2018, samantekt

Lagt fram til kynningar og rætt um helstu áherslur og störf störf nefndarinnar á liðnu kjörtímabili. Aðilar sammála um að starf nefndarinnar hafi verið metnaðarfullt, gott og farsælt.