Beint í efni

Holtsvegur 5 - Óleyfisframkvæmd- skjólgirðing

Málsnúmer 1807160

Ferill máls

afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

6. fundur

Skipulagsstjóri og byggingarfulltrúi hafa orðið þess varir að við Holtsveg nr. 5 hafa verið reistir skjólveggir sem eru ekki í samræmi við deiliskipulag Urriðaholts norðurhluta 2. Þar segir m.a. í grein 4.4.1.4. að skjólveggir skulu hannaðir með byggingu og gerð skil á aðaluppdráttum, að þeir skulu ekki vera hærri en 1,5 m yfir palli og að þeir skulu aldrei ná lengra en sem nemur helmingi af lengd lóðar frá húsvegg að lóðarmörkum. Þeir skjólveggir sem reistir hafa verið eru ekki í samræmi við ofangreind ákvæði og teljast því óleyfisframkvæmd. Fái veggirnir að standa eins og þeir eru útfærðir verða þeir fordæmisgefandi fyrir allt hverfið. Staðsetning þeirra er þar að auki á mjög áberandi stað við aðalinnkomu í hverfið. Þeir eru í andstöðu við markmið deiliskipulagsins.
Skipulagsstjóri leggur til að húseigendur breyti útfærslu veggjanna til samræmis við deiliskipulagákvæði. Leggja skal fram uppdrætti arkitekts hússins að útfærslunni eins og kveðið er á um í skilmálum.