Beint í efni

Ný persónuverndarlög - kynningar- og fræðslufundir

Málsnúmer 1809152

Ferill máls

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

01

6. fundur

Telma Halldórsdóttir persónuverndarfulltrúi Garðabæjar kom á fundinn. Hún kynnti ný lög um persónuvernd, sagði frá þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram í skólum bæjarins í tengslum við umrædd lög og áréttaði mikilvægi þess að nefndarmenn líkt og aðrir vinni samkvæmt því sem þar kemur fram.

Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar

02

2. fundur

Nýr persónuverndarfulltrúi Garðabæjar mun á næstu 4 vikum halda fræðslufundi fyrir alla starfsmenn grunnskóla bæjarins og tómstundaheimila, um áherslubreytingar á starfsemi grunnskóla vegna nýrra persónuverndarlaga.