2. fundur
2. fundur
Skólanefnd grunnskóla Garðabæjar
Í Urriðaholtsskóla
17.09.2018
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Jóhann Steinar Ingimundarson - aðalmaður
- Lilja Hrund Ava Lúðvíksdóttir - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Íris Kristina Óttarsdóttir - fulltrúi foreldra
Starfsmenn
- Edda Björg Sigurðardóttir - fulltrúi skólastjóra
- Kristín Sigurðardóttir - verkefnastjóri
- Katrín Friðriksdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Hilmar Þór Sigurjónsson - fulltrúi kennara
Ritari
- Kristín Sigurðardóttir
Þorgerður Anna skólastjóri Urriðaholtsskóla kom inn á fundinn undir lið 5.
Dagskrá
Málsnúmer 1808345
01
Forvarnarvika haust 2018
Undirbúningur að forvarnarviku 3.-10. október kynntur. Yfirskrift vikunnar verður "heilsueflandi samvera". Dagskrá verður fjölbreytt og er samstarfsverkefni flestra stofnana bæjarins auk annarra aðila sem koma að vinnu með börnum, unglingum og fjölskyldum.
Málsnúmer 1809156
02
Ytra mat - Barnaskóli Hjallastefnunnar
Rætt um stöðu mála á umbótaáætlun v/ ytra mats á starfsemi Barnaskóla Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum. Skólanefnd ítrekar að umbótaáætlun verði lokið og send ráðuneyti innan setts tímaramma sem er fyrir 24. september.
Málsnúmer 1801270
03
Samstarf SSH um símenntun grunnskólakennara
Kynning á samstarfsverkefni sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um símenntun grunnskólakennara, en fyrir liggur styrkur frá Erasmus í verkefnið. Fræðslan í ár er framhald frá fyrra ári um fræðslu fyrir kennara sem kenna nemendum með íslensku sem annað mál. Rætt um mikilvægi þess að hafa heildstæða þjónustu fyrir þennan hóp og skóladeild falið að skoða málið nánar og taka aftur upp á fundi skólanefndar í vetur.
Málsnúmer 1809152
04
Ný persónuverndarlög - kynningar- og fræðslufundir fyrir starfsmenn grunnskóla
Nýr persónuverndarfulltrúi Garðabæjar mun á næstu 4 vikum halda fræðslufundi fyrir alla starfsmenn grunnskóla bæjarins og tómstundaheimila, um áherslubreytingar á starfsemi grunnskóla vegna nýrra persónuverndarlaga.
Málsnúmer 1809154
05
Kynning á Urriðaholtsskóla
Kynning á helstu áherslum í starfi Urriðaholtsskóla, auk kynnisferðar um húsnæðið. Skólanefnd þakkar skólastjórnendum fyrir góðar móttökur og metnaðarfulla kynningu á starfi nýs skóla.