Fundur ungmennaráðs 16.10.2018
Ferill máls
Ungmennaráð Garðabæjar
01
32. fundur
1. Helga Vala Gunnarsdóttir í launalaust leyfi
Helga Vala kynnti Tómas Þór sem mun leysa hana af í eitt ár frá og með 1. nóvember
2. Formannskjör
Ágúst Ingi Bragason og Máni Magnússon sóttust eftir formennsku og kosning fór fram. Ágúst Ingi var kosinn formaður og Máni varaformaður.
3. Fundur v. fjárhagsáætlunar Garðabæjar
Ákveðið var á síðasta fundi að ungmennaráð fengi kynningu á fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019. Farið var yfir nokkur atriði sem ungmennin vildu nefna og spyrja um.
4. Erindisbréf ungmennaráðs Garðabæjar
Meðlimir ungmennaráðs vilja breyta nokkrum atriðum í erindisbréfi ungmennaráðs. Atriðin munu vera send á bæjarstjórn til samþykktar.
5. Fundartími
Facebook síða hópsins mun vera notuð til þess að finna fundartíma og Helga Vala hvatti ungmennin til þess að vera dugleg að nota síðuna til skrafs og ráðagerða í vetur.
6. Ritari ungmennaráðs
Anna Karen bauð sig fram til að vera ritari hópsins en í kjölfarið komu fleiri og ákveðið var því að ritarastarfinu yrði skipt niður á fundum.