Beint í efni

32. fundur

16.10.2018
Ungmennaráð Garðabæjar

32. fundur

Ungmennaráð Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

16.10.2018

Kl. 17:30 - 18:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Ágúst Ingi Bragason - aðalmaður
  • Anna Karen Elvarsdóttir - varamaður
  • Máni Magnússon - aðalmaður
  • Valgerður Eyja Eyþórsdóttir - aðalmaður
  • Lóa Kolbrá Friðriksdóttir - aðalmaður
  • Emma Stína Ólafsdóttir - aðalmaður
  • Rut Pétursdóttir - aðalmaður
  • Askur Hrafn Hannesson - aðalmaður
  • Tinna Margrét Hrafnkelsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Helga Vala Gunnarsdóttir - forstöðumaður Klakans

Ritari

  • Helga Vala Gunnarsdóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1811071

01

Fundur ungmennaráðs 16.10.2018

1. Helga Vala Gunnarsdóttir í launalaust leyfi

Helga Vala kynnti Tómas Þór sem mun leysa hana af í eitt ár frá og með 1. nóvember

2. Formannskjör

Ágúst Ingi Bragason og Máni Magnússon sóttust eftir formennsku og kosning fór fram. Ágúst Ingi var kosinn formaður og Máni varaformaður.

3. Fundur v. fjárhagsáætlunar Garðabæjar

Ákveðið var á síðasta fundi að ungmennaráð fengi kynningu á fjárhagsáætlun Garðabæjar 2019. Farið var yfir nokkur atriði sem ungmennin vildu nefna og spyrja um.

4. Erindisbréf ungmennaráðs Garðabæjar

Meðlimir ungmennaráðs vilja breyta nokkrum atriðum í erindisbréfi ungmennaráðs. Atriðin munu vera send á bæjarstjórn til samþykktar.

5. Fundartími

Facebook síða hópsins mun vera notuð til þess að finna fundartíma og Helga Vala hvatti ungmennin til þess að vera dugleg að nota síðuna til skrafs og ráðagerða í vetur.

6. Ritari ungmennaráðs

Anna Karen bauð sig fram til að vera ritari hópsins en í kjölfarið komu fleiri og ákveðið var því að ritarastarfinu yrði skipt niður á fundum.