Endurskoðun gildandi aðalskipulags
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
18. (840). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að ekki sé ástæða til að endurskoða aðalskipulag Garðabæjar í upphafi kjörtímabils 2018-2020 enda tók nýtt aðalskipulag gildi í maí á þessu ári. Niðurstaða bæjarstjórnar skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
02
45. (1860). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að ekki sé ástæða til að endurskoða aðalskipulag Garðabæjar í upphafi kjörtímabils 2018-2020 enda tók nýtt aðalskipulag gildi í maí á þessu ári.
Niðurstaða bæjarstjórnar skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 35. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
15. fundur
Samkvæmt 35.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skal sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum meta hvort ástæða sé til þess að endurskoða gildandi aðalskipulag sveitarfélagsins.
Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030 tók gildi sl. vor. Hvorki Landskipulagsstefna né Svæðisskipulag gefa tilefni til heildarendurskoðunar aðalskipulagsins og telur skipulagsnefnd því ekki ástæðu til að ráðast í þá vinnu á því kjörtímabili sem nú er hafið og lýkur árið 2022.