Beint í efni

Hækkun leikskólagjalda

Málsnúmer 1901297

Ferill máls

Leikskólanefnd Garðabæjar

01

4. fundur

Rætt var um leikskólagjöld í sveitarfélaginu.
Minnihluti lagði fram eftirfarnadi bókun:
Fulltrúar Garðabæjarlistans í leikskólanefnd eru andvígir þeirri gjaldskrárhækkun á leikskólagjöldum bæjarins sem samþykktar voru 6. desember 2018 í bæjarstjórn Garðabæjar. Þessi hækkun gerir leikskóla bæjarins þá dýrustu á landinu samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Við teljum þessa hækkun andstæða bókun bæjarstjóra, þegar fjárhagsáætlun 2019 var samþykkt, sem segir að áætlunin beri vott um ábyrga fjármálastjórn þar sem íbúum er áfram boðin góð þjónusta og lækkun álagna. Við tölum með ábyrgri fjármálastjórn og styðjum, en hækkun leikskólagjaldskrár umfram hækkanir á öðrum gjaldskrám er ekki í anda þeirrar lækkunar álagna sem bæjarstjóri vísar til.
Þegar núverandi meirihluti í Garðabæ talar fyrir 53% hærri leikskólagjöldum en t.d. í Reykjavík þá er vísað til aukinnar þjónustu, t.d. um sumaropnun, inntaka ungra barna og gæða kennslu. Við fulltrúar Garðabæjarlistans óskum eftir því að þessi aukna þjónusta sem á að réttlæta þessa dýrustu gjaldskrá landsins sé kostnaðargreind og lögð fram til að tryggja gagnsæi og lýðræðislegar ákvarðanir.