4. fundur
4. fundur
Leikskólanefnd Garðabæjar
Í Urriðaholtsskóla
17.01.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Kristjana F Sigursteinsdóttir - aðalmaður
- María Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Torfi Geir Símonarson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Fanney Hanna Valgarðsdóttir - varamaður
Starfsmenn
- Halldóra Pétursdóttir - verkefnastjóri
- Eiríkur Björn Björgvinsson - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Anna Kristborg Svanlaugsdóttir - fulltrúi starfsmanna
- Ragnhildur Skúladóttir - fulltrúi leikskólastjóra
- Eydís Sigurðardóttir - fulltrúi foreldra
Ritari
- Halldóra Pétursdóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1812148
01
Leikskólar - biðlisti - innritun
Lögð var fyrir kynning á framkvæmd við innritun í leikskólum og staða á biðlistum í lok árs 2018.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812147
02
Leikskóli - tölulegar upplýsingar
Lagðar voru fram tölulegar upplýsingar um fjölda barna hjá dagforeldrum og fjölda barna sem fá þjónustu í leikskólum í Garðabæ. Fram kemur fjöldi eftir árgöngum og kyni, fjöldi úthlutaðra sérkennslutíma og fjöldi foreldra sem hafa íslensku sem annað mál.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1812146
03
Kirkjuból - endurbygging
Upplýsingar veittar um stöðu framkvæmda við endurbyggingu Kirkjubóls.
Málsnúmer 1812120
04
Skýrsla starfshóps um barngildisútreikninga
Lagt fram minnisblað frá starfshópi leikskólastjóra vegna endurskoðunar á barngildisútreikningum og fjölda barna í leikskólum. Málinu er áfram í vinnslu fræðslu- og menningarsviðs.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1901297
05
Hækkun leikskólagjalda
Formaður nefndar bar upp tillögu um að bæta við dagskrárlið um hækkun leikskólagjalda. Tillagan var samþykkt af kjörnum fulltrúum.
Rætt var um leikskólagjöld í sveitarfélaginu.
Minnihluti lagði fram eftirfarnadi bókun:
Fulltrúar Garðabæjarlistans í leikskólanefnd eru andvígir þeirri gjaldskrárhækkun á leikskólagjöldum bæjarins sem samþykktar voru 6. desember 2018 í bæjarstjórn Garðabæjar. Þessi hækkun gerir leikskóla bæjarins þá dýrustu á landinu samkvæmt verðlagseftirliti ASÍ. Við teljum þessa hækkun andstæða bókun bæjarstjóra, þegar fjárhagsáætlun 2019 var samþykkt, sem segir að áætlunin beri vott um ábyrga fjármálastjórn þar sem íbúum er áfram boðin góð þjónusta og lækkun álagna. Við tölum með ábyrgri fjármálastjórn og styðjum, en hækkun leikskólagjaldskrár umfram hækkanir á öðrum gjaldskrám er ekki í anda þeirrar lækkunar álagna sem bæjarstjóri vísar til.
Þegar núverandi meirihluti í Garðabæ talar fyrir 53% hærri leikskólagjöldum en t.d. í Reykjavík þá er vísað til aukinnar þjónustu, t.d. um sumaropnun, inntaka ungra barna og gæða kennslu. Við fulltrúar Garðabæjarlistans óskum eftir því að þessi aukna þjónusta sem á að réttlæta þessa dýrustu gjaldskrá landsins sé kostnaðargreind og lögð fram til að tryggja gagnsæi og lýðræðislegar ákvarðanir.