Beint í efni

Listaverk Garðabæjar - skráning og stefna

Málsnúmer 1902232

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

8. fundur

Greint var frá fundum sem formaður og upplýsingastjóri hafa átt með ýmsum aðilum í tengslum við skoðun á því hvernig best er að halda utan um listaverkasafn bæjarins. Stefnt er að því að gera samning við ákveðinn aðila um endurskráningu á listaverkum bæjarins þar sem einnig verður gerð greining á því hvaða verk þykja eftirtektarverð og ber að halda sérstaklega utan um. Skoðað verður á sama tíma með hvaða hætti er best að setja verkin inn í sér skráningarkerfi eins og t.d. Sarp sem er notað víða hjá opinberum söfnum. Rætt var um mögulega stefnumótun í framhaldinu þegar skráningarvinnunni er lokið.