Beint í efni

Skeiðakur 7, dsk breyting

Málsnúmer 1904227

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

7. (847). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar lóðareiganda að Skeiðakri 7 um byggingu utan byggingarreits, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Bæjarráð Garðabæjar

02

16. (1877). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akrahverfis í tilefni umsóknar lóðareiganda að Skeiðakri 7 um byggingu utan byggingarreits. 2, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til lóðarinnar Skeiðakur 7. Samkvæmt tillögu nær bygging út fyrir byggingarreit að vestan verðu og sunnanverðu.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega og vísar til grenndarkynningar.
Grenndarkynna skal íbúum og eigendum Skeiðakurs 5, 6 og 9, Sunnakurs 6, Kornakurs 8 og 10 og Jafnakurs 8.