Rjúpnahæð 11 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. (1887). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Guðmundi Kristni Péturssyni, kt. 271172-3979, leyfi fyrir byggingu geymslu við núverandi hús að Rjúpnahæð 11.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Hæðahverfis (Bæjargils II.áfanga) sem vísað hefur verið til grenndarkynningar. Lagðir fram uppdrættir sem sýna umrædda breytingu og þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa lýst því yfir með að þeir geri ekki athugasemd við breytinguna. Í samræmi við 3.mgr.44.greinar Skipulagslaga nr.123/2010 skoðast tillagan því samþykkt og skal senda Skipulagsstofnun breytinguna og birta auglýsingu um gildistöku í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við í samræmi við 2.mgr.43.gr. sömu laga.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
4. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Hæða (Bæjargil II.áfangi) sem gerir ráð fyrir 29 m2 smáhýsi á baklóð, utan byggingareits.
Skipulagsstjóri metur breytinguna sem óverulega í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslags og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Rjúpnahæðar 8,9, 10, 11,12 og 13.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt bæjarstjórnar Garðabæjar nr.20/2017.