Sameiginlegur fundur menningar- og safnanefndar og stjórnar Hönnunarsafns Íslands
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
52. fundur
Menningar- og safnanefnd færði sig yfir í Hönnunarsafn Íslands þar sem safnstjóri, Sigríður Sigurjónsdóttir fór með leiðsögn um safnið. Þá var endurnýjuð stefna Hönnunarsafnsins kynnt sem og starfssemi safnsins. Góðar umræður áttu sér stað og stefnt að sameiginlegum fundum að minnsta kosti árlega.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
12. fundur
Sigríður Sigurjónsdóttir forstöðumaður Hönnunarsafnsins fer yfir nýja stefnumótun og aðgerðaráætlun safnsins. Leiðsögn um safnið.
Sigríður Sigurjónsdóttir, forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, fór yfir nýja stefnumótun og aðgerðaráætlun safnsins. Einnig var gengið um sýningar safnsins og sagt frá því sem er á döfinni hjá safninu.
Umræður voru um starfsemi safnsins.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
12. fundur
Umræður voru um menningarstarfsemi á Garðatorgi og möguleika sem eru til staðar í miðbænum. Rætt var um hvernig hægt væri að gera eitthvað til að vekja áhuga á hönnun með sérstökum viðburðum tengdum hönnun í samstarfi nefndanna.
Greint var frá hugmyndum um sameiginlegt menningar- og viðburðadagatal Hönnunarsafnsins og Bókasafnsins þar sem einnig er fjallað um fasta menningarviðburði á vegum menningar- og safnanefndar.