Heiðarlundur 15, viðbygging
Ferill máls
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
8. fundur
Heiðarlundi 15 sem vísað var til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að samþykkt deiliskipulag hefur ekki ennþá tekið gildi. Tillagan gerir ráð fyrir að bygging fari lítillega út fyrir byggingarreit að framanverðu.
Grenndarkynning náði til eigenda íbúðarhúsanna að Heiðarlundi nr. 17, 8, 11 og 13. Eigendur hafa með áritun sinni staðfest að þeir geri ekki athugasemdir við tillöguna.
Með vísan í 3.mgr.44.gr.Skipulagslaga gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.20/2017.
Bæjarstjórn Garðabæjar
04
12. (852). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Heiðarlundi 15 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en staðfesting á samþykktu deiliskipulagi liggur ekki fyrir.
Fundargerðin sem er 16 tl., er samþykkt samhljóða.
Bæjarráð Garðabæjar
05
33. (1894). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Heiðarlundi 15 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 en staðfesting á samþykktu deiliskipulagi liggur ekki fyrir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
12. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn um breytingar á einbýlishúsinu Heiðarlundur 15. Gert er ráð fyrir viðbyggingu sem nær hálfan metra út fyrir byggingarreit sem skilgreindur er í tillögu að deiliskipulagi og á mæliblaði.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar sbr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 þar sem að deiliskipulag hefur enn ekki tekið gildi í hverfinu.
Grenndarkynna skal eigendum Heiðarlundar nr. 7, 8, 11 og 13.