Beint í efni

Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk- Fulltrúi notenda í rekstrarstjórn

Málsnúmer 1909179

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

3. fundur

Lögð er fram tillaga Bergþóru Bergsdóttur varðandi samsetningu rekstrarstjórnar, en í skýrslu NOR frá árinu 2018, um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, var lagt til að slík stjórn yrði stofnuð og að hún myndi annast daglega stjórnun verkefnisins.

Í skýrslu NOR ehf. (Reynir Kristinsson) FERÐAÞJÓNUSTA FYRIR FATLAÐ FÓLK Niðurstöður greiningar og tillögur um fyrirkomulag sameiginlegrar ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, frá 5. nóvember 2018, kemur fram neðst á bls. 5:

"Lagt er til að sett verði á laggirnar sérstök 3 manna rekstrarstjórn til að treysta daglega stjórnun verkefnisins. Rekstrarstjórnin verði skipuð einum fulltrúa velferðarsviða sveitarfélaganna, einum fulltrúa frá SSH og einum fulltrúa Strætó bs."

Lagt er fram mál nr. 1909179, tillaga Bergþóru Bergsdóttur varðandi samsetningu rekstrarstjórnar. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ fór yfir minnisblað sem Bergþóra lagði fram og leggur til að notendur ferðaþjónustunnar eigi sinn fulltrúa í þessari rekstrarstjórn, ef af henni verður, sem skipaður verði af Öryrkjabandalagi Íslands.