3. fundur
3. fundur
Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.09.2019
Kl. 09:00 - 10:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Bjarni Theódór Bjarnason - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Bergþóra Bergsdóttir - aðalmaður
- Þorkell Jóhannsson - aðalmaður
- Sólveig Steinsson
Ritari
- Hildigunnur Árnadóttir
Dagskrá
Málsnúmer 1812061
01
Fundargátt nefndarmanna - breytt innskráning - rafræn skilríki - netföng
Bæjarfulltrúar og nefndarmenn fá netföng frá Garðabæ sem notuð eru til að senda fundarboð og önnur samskipti vegna starfa sinna fyrir Garðabæ.
Farið var yfir stöðuna varðandi Garðabæjar netföng nefndarmanna og er allt nefndarfólk komið með netföng. Boðað verður til næsta fundar á þau netföng.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 1906288
02
Umsókn um starfsleyfi/umsýsluleyfi vegna reksturs þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir
Umsókn NPA miðstöðvarinnar um starfsleyfi/umsýsluleyfi v. reksturs þjónustu við fatlað fólk til Gæða - og eftirlitsstofnunar.
Mál nr. 1906288 lagt fram til bókunar. Umsókn NPA miðstöðvarinnar um starfsleyfi/umsýsluleyfi lögð fram. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks er jákvæður gangvart því að NPA miðstöðinni verði veitt starfsleyfi.
Málsnúmer 1909179
03
Ferðaþjónusta fyrir fatlað fólk- Fulltrúi notenda í rekstrarstjórn
Lögð er fram tillaga Bergþóru Bergsdóttur varðandi samsetningu rekstrarstjórnar, en í skýrslu NOR frá árinu 2018, um ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk, var lagt til að slík stjórn yrði stofnuð og að hún myndi annast daglega stjórnun verkefnisins.
Í skýrslu NOR ehf. (Reynir Kristinsson) FERÐAÞJÓNUSTA FYRIR FATLAÐ FÓLK Niðurstöður greiningar og tillögur um fyrirkomulag sameiginlegrar ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk á höfuðborgarsvæðinu, frá 5. nóvember 2018, kemur fram neðst á bls. 5:
"Lagt er til að sett verði á laggirnar sérstök 3 manna rekstrarstjórn til að treysta daglega stjórnun verkefnisins. Rekstrarstjórnin verði skipuð einum fulltrúa velferðarsviða sveitarfélaganna, einum fulltrúa frá SSH og einum fulltrúa Strætó bs."

Lagt er fram mál nr. 1909179, tillaga Bergþóru Bergsdóttur varðandi samsetningu rekstrarstjórnar. Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks í Garðabæ fór yfir minnisblað sem Bergþóra lagði fram og leggur til að notendur ferðaþjónustunnar eigi sinn fulltrúa í þessari rekstrarstjórn, ef af henni verður, sem skipaður verði af Öryrkjabandalagi Íslands.