Sameiginleg verkefni menningar- og safnanefndar og skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
16. fundur
Rætt um möguleg samstarfsverkefni nefndanna.
Umræður voru um möguleg samstarfsverkefni nefndanna, s.s. tónleikaraðir o.fl. Nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar hafa til dæmis fengið að vera þátttakendur í Jazzhátíð Garðabæjar með upphitun á undan eða með sérstökum nemendatónleikum. Menningar- og safnanefnd hefur staðið fyrir Þriðjudagsklassík þar sem tónleikar hafa farið fram í sal Tónlistarskóla Garðabæjar og nemendur skólans hafa fengið að njóta tónleikanna. Nemendur Tónlistarskólans hafa verið að koma fram víða í bæjarfélaginu.
Umræður voru um nýja samstarfsfleti sem hægt væri að standa að og sem stuðlað gætu að fjölgun viðburða sem nemendur tónlistarskólans gætu tekið þátt í.
Nefndirnar voru sammála um að mikilvægt væri að huga að eflingu menningarstarfsemi til framtíðar með stækkandi bæ.
Skólanefnd tónlistarskóla Garðabæjar
02
6. fundur

03
15. fundur
Stefnt er að því að halda sameiginlegan fund menningar- og safnanefndar með stjórn Tónlistarskóla Garðabæjar síðar á haustönn. Rætt var um málefni sem ætti að taka fyrir á þeim fundi.