Beint í efni

Beiðni um umsögn vegna umsóknar Heilabrots um starfsleyfi

Málsnúmer 1910435

Ferill máls

Samráðshópur um málefni fatlaðs fólks

01

1. fundur

Tekið er fyrir mál nr. 1910435 beiðni um umsögn vegna umsóknar um starfsleyfi. Pála Einarsdóttir, þroskaþjálfi, situr fundinn undir þessum lið.

Gæða- og eftirlitsstofnun (GEF) hefur óskað eftir umsögn Samráðshóps um málefni fatlaðs fólks vegna umsóknar félagasamtakanna Heilabrots endurhæfingarseturs um starfsleyfi til reksturs þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.

Um er að ræða atferlismótandi endurhæfingu fyrir fók má ákominn heilaskaða.

Samráðshópurinn fjallar um málið og gerir ekki athugasaemd við að viðkomandi starfsleyfi verði veitt.